Fotbolti.net
Besta deildin
Magnús Atlason
Besta karla
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
0 - 0
KA
KA
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna
Liðin mættust þann 15. júní fyrir norðan í 10. umferðinni. Framarar unnu þá 4-3 sigur í hörkuskemmtilegum leik.

Sjáðu allt það helsta úr leiknum.

Fyrir leik
Framarinn spáir Fram 4-1 sigri
Stefán Pálsson var fenginn til þess að spá fyrir um leiki umferðarinnar. Stefán spáir 4-1 endurkomusigri Framara í dag.


"Við Framarar erum enn aumir eftir sumarið 2024 þegar KA vann okkur í þrígang. Það hefðu þeir ekki átt að gera. Aulamark gulklæddra í blábyrjun mun valda tímabundnu stressi í Dal draumanna en Vuk, Byström, Sigurjón og Freyr skora hver sitt markið á stuttum kafla sitthvoru megin við hlé. "
Fyrir leik
KA
Gengi KA í sumar hefur ekki verið upp á marga fiska. Eftir sigur Þórs á ÍBV í gær situr KA á botni deildarinnar, tveimur stigum frá öruggu sæt en pakkinn á botninum er mjög þéttur. Það munar ekki nema tveimur stigum á neðstu fjórum liðunum.

Í síðustu 5 hafa Akureyringarnir gert tvö jafntefli og tapað þremur. 5-3 tapið fyrir KR í síðustu umferð var fyrsti leikurinn með Eiði Smára innanborðs. Hann fær því annað verðugt verkefni fyrir liðið hér í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
Fram
Gengi Framara í sumar hefur verið frábært. Þeir sitja í þriðja sæti deildarinnar, jafnir að stigum við KR með 43, og átta stigum á eftir toppliði Víkings en ljóst er að a.m.k. annað þessara liða tapar stigum í þessari umferð.

Í síðustu 5 leikjum hafa þeir unnið þrjá, gert eitt jafntefli og tapað einum. Þeir sóttu sterkan 4-3 sigur gegn Breiðablik í síðustu umferð og þeir leita því eftir þriðja sigrinum í röð hér í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Tríóið
Gunnar Freyr Róbertsson verður með flautuna í dag og honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Jovan Subic. Hreinn Magnússon er fjórði dómari og dómaraeftirlitsmaður KSÍ er enginn annar en Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
21. umferðin
Leikurinn er hluti af 21. umferð deildarinnar. Hún hófst í gær með fallslag ÍBV og Þórs og heldur svo áfram í dag og á morgun. Umferðinni lýkur svo með risaleik á þriðjudag þegar KR-ingar taka á móti Víkingum.

Umferðin öll:

Laugardagur 29. ágúst
ÍBV 0-1 Þór
Sunnudagur 30. ágúst
Fram - KA (17:00)
FH - Keflavík (17:00)
Valur - ÍA (19:15)
Mánudagur 31. ágúst
Breiðablik - Stjarnan (19:15)
Þriðjudagur 1. september
KR - Víkingur R. (17:30)
Fyrir leik
Lambhagavöllurinn heilsar
Góðan daginn kæru lesendur og verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Lambhagavellinum í Úlfarsárdal þar sem Fram tekur á móti KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.