Fotbolti.net
15.09.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Framkvæmdastjóri ÍTF: Alveg hægt að kalla þetta 100 milljóna króna leik

Keflavík vann umspilsleikinn í fyrra.

Keflavík vann umspilsleikinn í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hversu verðmætt er að tryggja sér sæti í Bestu deildinni?

Á Laugardalsvelli, klukkan 16:15 á laugardag, mætast Þróttur og Fylkir í úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni árið 2027. Liðin enduðu í 2. og 3. sæti Lengjudeildarinnar og unnu sín einvígi í undanúrslitum umspilsins um sæti í Bestu.

Sjónvarpsrétthafinn, Livey birti færslu í gær sem sagði að 100 milljóna króna leikurinn yrði spilaður á laugardag.

En er rétt að kalla hann 100 milljóna króna leikinn? Fótbolti.net ræddi við Birgi Jóhannsson sem er framkvæmdastjóri ÍTF. Íslenskur toppfótbolti eru hagsmunasamtök fyrir félög sem reka lið í efstu tveimur deildum karla og kvenna.
„Livey kölluðu þetta 100 milljóna króna leikinn, það er kannski verið að teygja sig þar, en það er ekki óraunhæft að segja það þegar hugsað er út í allan pakkann. ÍTF hefur greitt félögum í Bestu deildinni réttindagreiðslur sem hefur verið um 21 milljón á lið undanfarin fimm ár. Sú greiðsla mun hækka, en það er ekki alveg ljóst hversu mikið," segir Biggi.

„UEFA greiðir einnig samstöðugreiðslur og sú upphæð hefur verið að hækka mjög mikið á undanförnum árum. Samstöðugreiðslurnar hafa hækkað verulega frá því að þessi úrslitaleikur var kallaður 50 milljóna króna leikurinn. Félögin fengu rétt um 40 milljónir greiddar í ár og sú upphæð mun hækka á næsta ári. Þegar þessir tveir liðir eru settir saman er upphæðin nálægt 70 milljónum."

„Svo eru allar afleiddar tekjur. Það mæta töluvert fleiri á leiki í Bestu deildinni en í Lengjudeildinni og það er auðveldlega hægt að áætla einhverjar miðasölutekjur og svo er aukið virði á sýnileika þegar kemur að samstarfsaðilum. Tölur eins og 90 milljónir og 100 milljónir króna eru alveg tölur sem geta gengið upp,"
segir Biggi.

Engin upphæð fæst fyrir að vinna leikinn sjálfan á laugardag. „Við gerðum samninga 2021 og 2022, seldum réttina og þá var samþykkt af félögum að 95% af öllum pottinum var greitt jafnt út, svo fara síðustu 5% út frá niðurstöðunni í deildunum."

„En auðvitað fást miklar tekjur af þessum leik, miðasala, VIP miðar og auglýsingar. Það getur gefið helling,
segir Biggi.

Vestri vann umspilið 2023.

Vestri vann umspilið 2023.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding vann umspilið 2024.

Afturelding vann umspilið 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.