Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta karla - Neðri hluti
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
0 - 0
KA
KA
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Fyrir leik
Blóðug botnbarátta
KA vann erkifjendurna í Þór, 3-0, í síðustu umferð í sannkölluðum sex stiga leik. Liðið er nú í 10. sæti með 23 stig, tveimur stigum fyrir ofan Þór, sem er í 11. sæti.

Þór mætir ÍBV fyrir norðan og hefst sá leikur sömuleiðis klukkan 14:00. ÍBV er á botni deildarinnar með 19 stig.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
Molar að norðan - Verður Eiður áfram?
Hér að neðan eru allir molar um KA sem birtist í risastóra slúðurpakka Fótbolta.net í vikunni.

KA
Óljóst er hver mun stýra KA á næsta tímabili. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn og samdi út tímabilið og ólíklegt þykir að Hallgrímur Jónasson verði áfram þjálfari liðsins.

Einhverjar sögur eru um að Haddi gæti tekið að sér skrifstofustarf hjá KA, þá sem yfirmaður fótboltamála hjá félaginu og sömuleiðis er Haddi orðaður við Þór ef Þorparar kjósa að breyta til hjá sér.

Heimir Guðjónsson hefur verið orðaður við KA en háværari orðrómur er um að hann taki við Stjörnunni.

Það þykir ólíklegt að Adam Ægir Pálsson verði áfram á Akureyri þegar samningur hans við KA rennur út í lok árs.

Steinþór Már Auðunsson, Stubbur, fer frá KA og verður mögulega spilandi aðstoðarþjálfari Magna.

Rodri, sem sleit krossband snemma sumars, gæti verið áfram hjá KA. Spánverjinn hefur verið lengi hjá félaginu og er öflugur í að miðla til yngri leikmanna.

Þorri Mar Þórisson er með áframhaldandi samning við Stjörnuna en hann er orðaður við KA.

Framtíð leikmanna hjá KA, Þór og ÍBV mun betur koma í ljós á næstu vikum þegar ljóst verður hvaða lið nær að halda sæti sínu í Bestu deildinni.

Fyrir leik
Stjörnuslúður - Heimir Guðjóns að taka við?
Hér að neðan eru allir molar um Stjörnuna sem birtist í slúðurpakkanum vígalega á Fótbolta.net fyrr í vikunni. Heimir Guðjóns, Viðar Ari og Bjarni Þór Viðarsson eru meðal nafna sem koma við sögu.

Stjarnan
Heimir Guðjónsson verður ekki áfram við stjórnvölinn í Árbænum. Þjálfarinn er sterklega orðaður við þjálfarastöðuna hjá Stjörnunni og sumar sögur eru á þá leið að það sé frágengið að hann verði næsti þjálfari Stjörnunnar.

Þrátt fyrir að hafa endursamið við Gróttu er Rúnar Páll Sigmundsson áfram orðaður við þjálfarastarfið í Garðabænum.

Bjarni Þór Viðarsson er orðaður við starf yfirmanns fótboltamála hjá Stjörnunni ásamt sömu stöðu hjá Val. Bróðir hans sinnir sama starfi hjá FH. Stjarnan ætlar að ráða mann í þá stöðu á næstu vikum, en Stjörnumenn hafa ekki verið með það stöðugildi áður.

Stjarnan á enn eftir að ráða í stöðu yfirþjálfara yngri flokka sem er nokkuð stórt starf í íslenska fótboltaheiminum.

Kristófer Konráðsson verður samningslaus eftir tímabil en Fram vill halda honum. Slúðrað hefur verið um mögulega endurkomu í Garðabæinn en það er líka áhugi frá öðrum liðum í Bestu.

Kantmaðurinn Theodór Ingi Óskarsson hjá Fylki er sömuleiðis á óskalista Stjörnunnar.

Viðar Ari Jónsson er á heimleið frá HamKam og er Stjarnan með hann á óskalista sínum. Þá hafa Garðbæingar sömuleiðis augastað á Hjörvari Daða Arnarssyni, markverði Grindavíkur.

Arnór Ingi Kristinsson (ÍBV) er á óskalista Stjörnunnar. Hægri bakvörðurinn er uppalinn hjá Stjörnunni. Þá hefur félagið jafnframt áhuga á því að kaupa Aron Lucas Vokes frá Selfyssingum en hann lék á láni með ÍBV seinni hluta sumars. Selfyssingar vilja halda honum.

Andri Rúnar Bjarnason mun yfirgefa Stjörnuna þegar samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið.

Árni Snær Ólafsson, Damil Dankerlui, Sindri Þór Ingimarsson og unglingalandsliðsmarkvörðurinn Ðuro Stefan Beic eru sömuleiðis með lausa samninga.

Fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson hefur þá tilkynnt að hann muni leggja skóna á hilluna í lok tímabils. Svo er spurning hvort Árni Vilhjálmsson og Daníel Finns Matthíasson verði áfram í Garðabæ.

Halldór Snær Georgsson, markvörður KR, er orðaður við Stjörnuna skyldi Árni Snær Ólafsson yfirgefa Garðabæinn.

Þorri Mar Þórisson er með áframhaldandi samning við Stjörnuna en hann er orðaður við bæði KA og ÍBV.

Fyrir leik
Þriggja vikna frí það síðasta sem Eiður óskaði sér
KA vann 3-0 sigur á erkifjendunum í Þór í síðasta leik fyrir hlé. Eiður Smári Guðjohnsen stóð ekki á svörum er hann var spurður út í landsleikjahléið langa í viðtali eftir leik. „Það er sennilega það síðasta sem ég myndi óska mér að fara í þriggja vikna frí núna.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Besta deildin snýr loksins aftur!
Heilir og sælir lesendur góðir og veriði hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Samsungvellinum í Garðabæ.

Hér klukkan 14:00 mun hefjast viðureign Stjörnunnar og KA í 25. umferð Bestu deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.