Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurjón Árni Torfason
Sigurjón Árni Torfason
Besta karla - Efri hluti
Akraneshöllin
ÍA
ÍA
4 - 4
Keflavík
Keflavík
Markús Páll Ellertsson 11'1 - 01 - 117' Alpha ContehGísli Laxdal Unnarsson 22'2 - 1Styrmir Jóhann Ellertsson 38'3 - 13 - 245' Eiður Orri Ragnarsson3 - 348' Alpha Conteh3 - 456' Axel Ingi JóhannessonGísli Eyjólfsson 74'4 - 4
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Leik lokið!
Þetta er búið. Tímabilið búið.
Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg!
92. mín
Stönginn!
Jón Gísli fær boltann frá Ómari birni. Jón Gísli skrúfar hann í stöngina!
90. mín
Skagamenn fá hornspyrnu!
88. mín
Keflavík fá annað horn!
86. mín
Skagamenn vilja vítaspyrnu ég sá ekki almennilega hvað gerist!
Keflavík
83. mín
InnArnór Atli Aðalbjörnsson
ÚtStefan Alexander Ljubicic
Kveðjuleikur Ljubicic?
ÍA
81. mín
InnÍsak Máni Guðjónsson
ÚtJohannes Björn Vall
Johannes Vall er einnig að kveðja Skagan og fær heiðursskiptingu!
ÍA
81. mín
InnJón Gísli Eyland Gíslason
ÚtStyrmir Jóhann Ellertsson
80. mín
Þetta var varsla!
Stefan Ljubicic í góðri stöðu og á gott skot sem Árni ver virkilega vel í horn!
Keflavík
75. mín
InnMate Simicic
ÚtSindri Snær Magnússon
Keflavík
75. mín
InnViktor Árni Traustason
ÚtBaldur Logi Brynjarsson
ÍA
74. mín
Alvöru markaveisla!

Gísli Eyjólfsson (stoðsending: Markús Páll Ellertsson)

Markús gerir virkilega vel að koma boltanum á Gísla sem er einn gegn Ásgeiri, Gísli virtist í fyrstu vera að fara klikka á þessu en kemur boltanum framhjá Ásgeiri og í netið!
72. mín
Dauðafæri!
Eiður Orri er sloppinn einn gegn Árna, en Árni með virkilega góða vörslu!
Keflavík
69. mín
InnÁsgeir Páll Magnússon
ÚtEgill Valur Karlsson
67. mín
Lítið hefur verið að frétta síðustu 10 mín ca
ÍA
58. mín
InnBöðvar Böðvarsson
ÚtRúnar Már S Sigurjónsson
Gæsahúð!
Rúnar Már fær hér heiðursskiptingu og allir standa upp og klappa!
King Rúnar Már.
Takk fyrir allt!
ÍA
58. mín
InnGuðmundur Þórarinsson
ÚtHaukur Andri Haraldsson
Keflavík
56. mín
Keflavík eru komnir yfir!

Axel Ingi Jóhannesson (stoðsending: Eiður Orri Ragnarsson)

Eiður Orri tekur hornspyrnuna stutt á Alpah Conteh sem kemur honum aftur á Eið sem kemur með góðan bolta inná teig og Axel ingi með geggjaðan skalla sem Árni ræður enganveginn við!
54. mín
Stefan Ljubicic með sprett upp vinstri vænginn, og endar á því að bomba á vegginn og liggur eftir
52. mín
Wow hvað þetta er orðið þreytt!
Þetta er í þriðja eða fjórða skiptið sem boltinn endar uppí rjáfrum.
Smá Leingjubikars-vibe yfir þessu!
50. mín
Keflavík að byrja þetta miklu betur!
Frá upphafi seinni hálfleiks hafa Keflvíkingar verið með öll tök á vellinum. Skagamenn sofandi?
Keflavík
48. mín
Þetta var fallegt !

Alpha Conteh (stoðsending: Eiður Orri Ragnarsson)

Alpha Conteh er að jafna fyrir Keflavík fær boltann frá Eið Orra inná teig, Alpah með alvöru skot sem endar í samskeytunum!
Keflavík
46. mín
InnFrans Elvarsson
ÚtDagur Ingi Valsson
Keflavík gerir eina breytingu í hálfleik!
46. mín
Þetta er farið aftur af stað!
Skagamenn koma þessu af stað!
45. mín
Hálfleikur
Skemmtilegum fyrri hálfleik lokið hér.
tökum okkur 15 min!
Keflavík
45. mín
Keflavík að minkar muninn!

Eiður Orri Ragnarsson (stoðsending: Axel Ingi Jóhannesson)

Axel Ingi með geggjaða fyrirgjöf á kollinn á Eið Orra sem á góðan skalla sem Árni ræður ekki við.
3-2!
45. mín
Tveimur mín bætt við!
45. mín
Flott varsla
Markús með góða tilraun en Ásgeir ver vel í horn.
44. mín
Eiður Orri fær ágætis kallfæri en skalli hans er yfir markið
40. mín
Skagamenn fá horn!
ÍA
38. mín
Hvað er Conteh að gera?

Styrmir Jóhann Ellertsson

Styrmir og Conteh eru í baráttu um boltann, Conteh telur að Styrmir brjóti af sér og hættir bara og styrmir tekur boltann og er sloppinn í gegn og klárar vel.
Aldrei aukaspyrna af mínu viti!
ÍA
35. mín
InnÓmar Björn Stefánsson
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
Gísli þarf að fara af velli meiddur enn er með mark og stoðsendingu !
33. mín
Hættulegur leikur
Alpha Conteh með flottan bolta fram á Eið Orra sem er nánast sloppinn í gegn en Árni mætir honum og rétt nær til boltans!
32. mín
Frábær sókn Skagamanna sem endar á skoti frá Markúsi í varnarmann og afturfyrir í horn.
ÍA
22. mín
Gísli Laxdal mark og assist!

Gísli Laxdal Unnarsson (stoðsending: Viktor Jónsson)

Gísli Eyjólfs með sendingu inná teiginn á Viktor Jóns sem framlengir hann á Gísla Laxdal sem er með alvöru afgreiða og skrúfar hann í fjær!
20. mín
Sindri Snær ætlar að copya Conteh með skoti en það er laglaust beint á Árna.
Keflavík
17. mín
Þetta var fallegt!

Alpha Conteh

Það er Alpha Conteh sem er að jafna hér fyrir Keflavík fær boltann fyrir utan teig og á geggjað skot af 25 metrum sem Árni Marínó á ekki breik í!
16. mín
Marin Brigic fær boltann inná teignum eftir fyrirgjöf en skot hans framhjá!
14. mín
Keflavík fá sínu fyrstu hornspyrnu.
ÍA
11. mín
Skagamenn komnir yfir!

Markús Páll Ellertsson (stoðsending: Gísli Laxdal Unnarsson)

Gísli Laxdal fær boltann út við hornfánan, og á góða sendingu á Markús Pál sem tekur boltann í fyrsta niðri á nær stöngina og kemur Skagamönnum yfir!
8. mín
Leikurinn byrjar nokkuð rólega og er mikið fram og til baka!
5. mín
Johannes Vall sparkar boltanum fram en boltinn uppí þak og Keflavík fá boltann. Lágt til lofts hér.
4. mín
Johannes Vall með fína fyrirgjöf á hausinn á Viktori en skalli hans er framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Komið af stað!
Það eru Keflvíkingar sem byrja hér!
Fyrir leik
Efnilegastur!
Markús Páll valinn efnilegastur í Bestu deildinni og fær veittar viðurkenningu!
Fyrir leik
Liðinn ganga inn á völlinn
Lagið þetta er fyrir Tindastól hér undir fyrir fyrirliða Rúnar Má!
Fyrir leik
x
Fyrir leik
Þriðja liðið
Gunnar Freyr Róbertsson er á flautunni honum til halds og trausts eru þeir Kristofer Bergmann og Þráinn Jón Elmarsson.
Fjórði dómarinn er Elías Ingi Árnason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Champa league Cosic spáir í þessari umferð!
ÍA 3 - 1 Keflavík
ÍA tekur þennan leik 3-1. Þetta verður frekar leiðinlegur leikur, en Haukur skorar eitt mark og Ljubicic bætir öðru við.

Fyrir leik
Markús Páll var valinn efnilegastur
Markús Páll valinn efnilegasti leikmaður tímabilsins og nokkuð ljóst að hann fari út eftir tímabil!
Fyrir leik
Keflavík með lyklana af Skaganum!
Þessi lið hafa mæst tvisvar í sumar fyrri leikurinn uppá Skaga endaði
1-3 fyrir Keflvíkinga. Seinni leikurinn fór fram suður með sjó og lauk þeim leik 5-2 fyrir heimamönnum. Markatalan er 8-3 í þessum tveimur leikjum og er óhætt að segja að Keflvíkingum líður vel gegn Skagamönnum.


Fyrir leik
Hvað verður um Lárus Orra ?
Eitt umtalaðasta málið í íslenskum fótbolta er án efa hvað verður um Lárus Orra?

Það hefur mikið verið talað um að stjórnarformenn ÍA munu reka Lárus eftir tímabilið og nafn Heimis Guðjóns þjálfara Fylkis og eins sigursælasta þjálfara Íslands með FH oftast nefnt á nafn sem nýjan þjálfara ÍA.

Ég persónulega veit ekki með þetta Lárus Orri hefur náð hörku árangri með Skaganum, og ná þeir fjórða sætinu með sigri, sem er þeirra besti árangur frá 2007 sem er galið langt síðan. Lárus Orri á skilið annað tímabil með Skaganum að mínu mati og koma liðinu ofar og lengra í bikar.

En að sjálfsögðu er Heimir einn stærsti prófíllinn sem þjálfari á þessu landi og kannski erfitt að horfa framhjá honum ?


Steinke hefur aðeins kafað í þessi málefni og heyrt í sjálfum Lárusi og Eggerti Herbertssyni Formanni ÍA



Við munum sjá hvað gerist hjá Skagamönnum eftir leikinn gegn Keflavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Keflvíkingar
Keflavík hafa komið öllum á óvart á tímabilinu og náðu þeir að koma sér í efri hlutan, þeim var spáð falli af flestum fjölmiðlum og meðal annars hjá okkur hjá Fótbolta.net en óhætt að segja að Keflvíkingar hafa sokkað flesta.




Keflavík hafa hinsvegar ekki unni leik í umspilinu í Bestu deildinni á þessu tímabili, einnig hafa þeir tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum.
Heilt yfir geta strákarnir af Suðurnesjum gengið stoltir frá borði eftir þetta tímabil.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Skagamenn
Skagamenn koma á góðri siglingu inní leikinn.
ÍA hafa tapað einum leik frá því 20 Júlí og það kom gegn KR. Skagamenn geta gengið stoltið frá tímabili ef þeim tekst að landa þremur punktum gegn Keflvíkingum. ÍA geta enda í fjórða sæti með sigri og yrði það þeirra besti árangur frá sumrinu 2007.


ÍA spilaði seinast gegn Fram og lauk þeim leik með 4-2 sigri í skemmtilegum leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lokaumferðin BÆNG!
Það er komið að lokaumferðinni í Bestu deild karla þetta árið.
ÍA tekur á móti Keflavík í lokaumferðinni, og leikið verður inni í Akraneshöllinni vegna framkvæmda á Elkem-vellinum!
Ákvörðuninn er umdeild en henni verður ekki breytt.


Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Innkastið í beinni á X977 klukkan 18
Mynd: Fótbolti.net

Umferðin verður gerð upp í sérstökum lokaþætti Innkastsins sem verður í beinni á X977 klukkan 18:00. Þátturinn kemur síðan inn á hlaðvarpsveitur í kjölfarið.

Besta karla - Efri hluti
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (Akraneshöllin)
16:15 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.