Fotbolti.net
Besta deildin
Brynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Besta karla - Neðri hluti
Samsungvöllurinn
Sól og kuldi
Stjarnan
Stjarnan
6 - 0
Valur
Valur
Guðmundur Baldvin Nökkvason 14'1 - 0Birnir Snær Ingason 21'2 - 0Birnir Snær Ingason 35'3 - 0Örvar Eggertsson 38'4 - 0Jóhann Árni Gunnarsson 43'5 - 0Guðmundur Baldvin Nökkvason 86'6 - 0
Dómari: Sveinn Arnarsson
Áhorfendur: 467

SKÝRSLAN: Stjarnan tryggir sér Forsetabikarinn á markamun

Hvað réði úrslitum?

Þrátt fyrir að Valur voru meira með boltann og fleiri skot í leiknum þá áttu Valur engan séns í skyndisóknir Stjörnumanna. Stjarnan skoruðu í nánast hverri sókn í fyrri hálfleik og leit það út fyrir að leikmenn Vals voru tilbúnir að fara í frí.

Bestu leikmenn

1. Birnir Snær Ingason

Rosalegur í þessum leik. Skaaði fullt og skoraði 2 mörk í leiknum

2. Arnar Breki Björnsson

Fyrsti byrjunarleikur hjá honum á 15 ára aldri og spilaði allar 90 mínúturnar. Stóð sig ótrúlega vel sem hafsent og á aðeins framtíðina fyrir sig.
Að auki má nefna Örvar Eggerts, Guðmundur Baldvin og Benedikt Waren sem átti allir líka frábæran leik í dag!

Atvikið

Það var merkilegt í fyrri hálfleik að sjá Stjörnuna skora 5 mörk þrátt fyrir að Valur var nánast alltaf í sókn.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan fer upp fyrir Val og enda í 7. sæti með jafn mikið stig og marka mun og Valur, en sigra Val í mörk skoruð. Stjarnan vinnur þar með Forsetabikarin.

Vondur dagur

Þetta var alls ekki góður dagur hjá Val í dag. Enginn átti góðan leik og þetta var vondur dagur hjá öllu liðinu.

Dómarinn - 8

Það fór lítið fyrir dómurum leiksins og ég man ekki eftir neinu atviki þar sem menn voru ósáttir með ákvörðun dómarans. Dómarar leksins þurftu heldur ekki að gera mikið í leiknum og var þetta í heild bara vel dæmdur leikur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.