Gasperini tekinn við Roma (Staðfest)
Gian Piero Gasperini er nýr stjóri Roma á Ítalíu en hann skrifar undir samning við félagið sem gildir til ársins 2028. Claudio Ranieri kom að ráðningunni en hann stýrði Roma á síðasta tímabili.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25117 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Gian Piero Gasperini er nýr stjóri Roma á Ítalíu en hann skrifar undir samning við félagið sem gildir til ársins 2028. Claudio Ranieri kom að ráðningunni en hann stýrði Roma á síðasta tímabili.
Ráðamenn Tottenham Hotspurs hafa tekið þá ákvörðun að reka Ange Postecoglou, en hann hefur verið stjóri liðsins í tvö ár. Matt Law, blaðamaður hjá <i>Telegraph</I>, skrifar í dag að búist sé við tilkynningu frá Tottenham fljótlega. <b>Uppfært 16:10 - </b>Tottenham hefur staðfest tíðindin. Honum er þakkað fyrir sín störf. Ástæðan fyrir því er slakur árangur í úrvalsdeildinni. Ákvörðunin er tekin rúmum tveimur vikum eftir að Totteham vann sinn fyrsta titil í sautján ár, en liðið sigraði Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Með því vannst titil og á sama tíma tryggði liðið sér sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.
West Ham hefur staðfest að Jean-Clair Todibo mun ganga alfarið í raðir félagsins 1. júlí en hann var á láni hjá félaginu í vetur. Todibo er 25 ára miðvörður sem West Ham greiðir Nice tæplega 33 milljónir punda fyrir. Hann var sterklega orðaður við Man Utd á sínum tíma en fór til West Ham. Hann á að baki tvo A-landsleiki fyrir Frakkland og var 'sínum tíma á mála hjá Barcelona. Í vetur kom hann sögu í 27 úrvalsdeildarleikjum.
Hinn 23 ára gamli Gabri Veiga stoppaði stutt í Sádi-Arabíu en hann er genginn til liðs við Porto frá Al-Ahli.
Newcastle hefur tilkynnt að Antonio Cordero muni ganga í raðir félagsins 1. júlí þegar samningur hans við Malaga rennur út. Cordero er 18 ára spænskur vængmaður sem er hluti af spænska U19 landsliðinu. Hann hefur skorað sjö mörk og lagt upp níu í 60 meistaraflokksleikjum með Malaga sem endaði í 16. sæti spænsku B-deildarinnar í vetur.
Rangers, annað af tveimur stærstu félögum Skotlands, hefur staðfest ráðninguna á Russell Martin sem nýjum stjóra liðsins. Martin, sem er 39 ára gamall, skrifar undir þriggja ára samning við Rangers.
Nuno Tavares er genginn í raðir Lazio frá Arsenal en vinstri bakvörðurinn var á láni hjá ítalska félaginu í vetur. Það var kaupskylda í lánssamnngum og Lazio hefur gengið frá kaupunum.
Sádi-arabíska félagið Al Hilal tilkynnti í kvöld um komu ítalska þjálfarans Simone Inzaghi.
Enski sóknarmaðurinn Liam Delap er formlega genginn til liðs við Chelsea frá Ipswich Town.
Enski varnarmaðurinn Tyrone Mings hefur framlengt samning sinn við Aston Villa um eitt ár eða til ársins 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Fulham tilkynnti í dag að þeir Willian og Carlos Vinicius myndu yfirgefa félagið þegar samningar þeirra renna út í lok mánaðar. Kantmaðurinn Willian, sem verður 37 ára í ágúst, sneri aftur til Fulham fyrr á þessu ári á frjálsri sölu, hann er að klára sinn þriðja kafla hjá Fulham en hann lék sinn fyrsta leik fyrir félagið árið 2022. Framherjinn Vinicius var ekki í stóru hlutverki, var þriðji kostur á eftir þeim Raul Jimenez og Rodrigo Muniz.
Michael Carrick var í morgun rekinn úr starfi sínu sem stjóri Middlesbrough. Carrick hefur stýrt Middlesbrough með fínum árangri frá 2022. Undir hans stjórn endaði liðið í fjórða, áttunda og tíunda sæti Championship-deildarinnar.
Enska félagið Sunderland er búið að festa kaup á franska miðjumanninum Enzo Le Fée fyrir metfé.
HK er búið að semja við Atla Þór Gunnarsson sem er 18 ára gamall miðjumaður og fékk samningi sínum við Breiðablik rift á dögunum.
Leiknir tilkynnti í dag að félagið hefði gengið frá samningi við Ágúst Þór Gylfason um að taka við liði félagsins. Ágúst skrifar undir samning sem gildir út yfirstandandi tímabil. Hann tekur við liðinu af Óla Hrannari Kristjánssyni sem var látinn fara eftir tapleikinn gegn Grindavík á föstudagskvöld. Ágúst tekur við Leikni á botni Lengjudeildarinnar, liðið á leik í 6. umferð Lengjudeildarinnar á morgun þegar Leiknismenn heimsækja Fylki.
Brentford hefur fest kaup á markverðinum Caoimhin Kelleher. Hann kemur frá Liverpool er kaupverðið um 18 milljónir punda. Kelleher hefur síðustu ár verið einn besti varamarkvörður ensku úrvalsdeildarinnar, ef ekki bara sá besti.
Hollenska félagið Sparta Rotterdam greindi frá því rétt í þessu að Nökkvi Þeyr Þórisson væri genginn í raðir félagsins, en hann er keyptur frá St. Louis City. Nökkvi var fyrri hluta árs á láni hjá Spörtu og var hollenska félagið með kaupákvæði í lánssamningnum sem það nýtti sér. Dalvíkingurinn skrifar undir þriggja ára samning í Rotterdam. Samningur hans í St. Louis hefði runnið út í lok árs.
Ryan Mason hefur verið ráðinn þjálfari West Bromwich Albion sem leikur í Championship deildinni.
Miðjumaðurinn Dario Essugo er genginn til liðs við Chelsea frá Sporting. Hann skrifar undir átta ára samning við félagið. Chelsea borgar 18,5 milljónir punda fyrir hann. Essugo er tvítugur Portúgali en hann var á láni hjá Las Palmas á síðustu leiktíð þar sem hann lék 27 leiki og skoraði eitt mark í spænsku deildinni.
Maurizio Sarri hefur verið ráðinn stjóri Lazio 15 mánuðum eftir að hafa yfirgefið félagið.