Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
banner
   þri 03. júní 2025 20:18
Ívan Guðjón Baldursson
Atli Þór í HK (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: HK
HK er búið að semja við Atla Þór Gunnarsson sem er 18 ára gamall miðjumaður og fékk samningi sínum við Breiðablik rift á dögunum.

   28.05.2025 14:58
Fékk samningi sínum við Breiðablik rift og æfir nú með HK


Atli Þór er fæddur 2006 og kom við sögu í fjórum leikjum með Blikum í Bestu deild karla sumarið 2023. Hann fékk ekkert að spila í fyrra og hefur núna skipt yfir til HK sem leikur í Lengjudeildinni.

Atli kemur til HK á frjálsri sölu og er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við félagið, sem gildir út tímabilið 2027.

Atli er uppalinn hjá Blikum og verður áhugavert að sjá hvernig honum gengur hjá nágrönnunum. Hann hefur verið að æfa með HK að undanförnu.

HK er með 8 stig eftir 5 fyrstu umferðirnar í Lengjudeildinni, þremur stigum á eftir toppliðunum í mjög þéttum pakka. Atli er gjaldgengur strax í næsta leik liðsins sem verður á heimavelli gegn Selfossi annað kvöld.
Slapp
Athugasemdir
banner