Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   mán 02. júní 2025 20:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ryan Mason ráðinn til West Brom (Staðfest)
Mynd: EPA
Ryan Mason hefur verið ráðinn þjálfari West Bromwich Albion sem leikur í Championship deildinni.

Mason er aðeins 33 ára gamall en hann skrifar undir þriggja ára samning við West Brom. Hann kemur frá Tottenham þar sem hann var aðstoðarþjálfari Ange Postecoglou.

Hann hefur verið í þjálfarateymi Tottenham frá 2019 en hann lagði skóna á hilluna árið 2018 eftir að hafa höfuðkúpubrotnað ári áður í leik með Hull gegn Chelsea. Hann ólst upp hjá Tottenham og spilaði 70 leiki fyrir liðið.

Hann var 29 ára gamall þegar hann tók við stjórnartaumunum hjá Tottenham tímabundið af Jose Mourinho árið 2021. Hann var einnig stjóri liðsins tímabundið tímabilið 2022/2023.


Athugasemdir
banner
banner
banner