Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 04. júní 2025 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sunderland borgar metfé fyrir Le Fée (Staðfest)
Mynd: Sunderland
Mynd: EPA
Enska félagið Sunderland er búið að festa kaup á franska miðjumanninum Enzo Le Fée fyrir metfé.

Sky Sports greinir frá því að Sunderland borgi um 20 milljónir punda til að kaupa Le Fée, sem hefur leikið með liðinu á láni frá AS Roma síðan í janúar.

Það var ákvæði í lánssamningnum um að Sunderland myndi kaupa leikmanninn ef liðið kæmist upp um deild, sem tókst með ótrúlegum hætti eftir sigur gegn Sheffield United í úrslitaleik umspilsins.

Enzo Le Fée mun því leika með Sunderland í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Didier Ndong var fyrir þetta dýrasti leikmaður í sögu Sunderland eftir að félagið keypti hann fyrir um 17 milljónir punda tímabilið 2016-17.

Asamoah Gyan, sem var keyptur til Sunderland tímabilið 2010-11, er í þriðja sæti yfir dýrustu kaup félagsins frá upphafi.


Slapp
Athugasemdir
banner