FRÉTTIR22.01.2025, 12:12
ÍBV og Sigurður Arnar Magnússon hafa náð samkomulagi um tveggja ára framlengingu á samningi Sigurðar við félagið. Hann er nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2026.
Sigurður hefur spilað lengi með ÍBV og alls 157 KSÍ leiki fyrir félagið, hann á einnig nokkra leiki að baki fyrir KFS sem komu sumarið 2017.
<i>„Hann hefur samhliða námi leikið með ÍBV síðustu ár en hann lék virkilega vel á nýliðnu tímabili í bandaríska háskólaboltanum og vakti athygli með háskólaliði sínu Ohio State. Sigurður leikur alla jafna sem miðvörður en hann er einnig gæddur eiginleikum sem gera honum auðvelt til að leika framar á vellinum. Fréttirnar eru mikið gleðiefni fyrir ÍBV og fagnaðarefni að Sigurður taki slaginn með ÍBV í Bestu deildinni,"</I> segir í tilkynningu ÍBV.
FRÉTTIR22.01.2025, 09:22
Dortmund tilkynnti í morgun að búið væri að reka stjórann Nuri Sahin úr starfi. Það var gert eftir 2-1 tap liðsins gegn Bologna í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Tapið var það fjórða í röð í öllum keppnum og liðið hefur einungis unnið einn af níu síðustu leikjum sínum.
Sahin hefur ekki náð viðunandi árangri sem stjóri liðsins eftir að hafa tekið við starfinu síðasta sumar.
Tekið er fram að Dortmund muni upplýsa fljótlega um hver mun stýra liðinu gegn Werder Bremen í þýsku Bundesligunni á laugardag.
FRÉTTIR21.01.2025, 18:57
Þór Akureyri hefur fengið nýjan varnarmann, hann er Fílabeinsstrendingur sem heitir Yann Emmanuel Affi og er 29 ára gamall.
Hann mun leika með Þórsliðinu í Lengjudeildinni á komandi leiktíð. Þór endaði í tíunda sæti deildarinnar í fyrra en varnarleikur liðsins var ekki góður.
FRÉTTIR21.01.2025, 14:44
KA tilkynnti rétt í þessu að Andri Fannar Stefánsson væri búinn að framlengja samning sinn við KA út tímabilið 2025.
Andri er 33 ára miðjumaður sem uppalinn er hjá KA. Hann hefur spilað 182 leiki í deild, bikar og Evrópu fyrir KA og skorað í þeim 12 mörk.
Hann lék sína fyrstu leiki sumarið 2008. Árið 2010 hélt hann í Val þar sem hann varð tvívegis Íslandsmeistari og tvívegis bikarmeistari. Hann sneri aftur í KA fyrir tímabilið 2019 og hefur verið þar síðan.
FRÉTTIR21.01.2025, 13:51
Kristján Oddur Kristjánsson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt Val frá Gróttu. Þessi 17 ára leikmaður lék sex leiki með Gróttu í Lengjudeildinni í fyrra og einn bikarleik.
FRÉTTIR21.01.2025, 13:33
Landsliðsmarkvörðurinn Telma Ívarsdóttir hefur fengið félagaskipti til skoska stórliðsins Rangers. Fótbolti.net sagði fyrst frá því á dögunum að Telma væri að ganga í raðir félagsins.
Telma skrifar undir tveggja og hálfs árs samning við Rangers.
FRÉTTIR21.01.2025, 13:18
Víkingur mun leika heimaleik sinn í einvíginu gegn Panathinaikos í Helsinki í Finnlandi en félagið hefur staðfest þetta. Vegna lélegra vallarmála hér á Íslandi þarf Víkingur að spila erlendis.
UEFA gaf ekki leyfi fyrir því að leikurinn yrði spilaður í Danmörku eins og Víkingur hafði stefnt að en áður hafði því verið hafnað að leikið yrði í Færeyjum.
Leikið verður á heimavelli HJK Helsinki sem er gervigrasvöllur.
Leikurinn í Helsinki fer fram fimmtudaginn 13. febrúar og seinni leikurinn verður miðvikudaginn 19. febrúar eða fimmtudaginn 20. febrúar í Aþenu. Sigurliðið í einvíginu kemst í 16-liða úrslit Sambandsdeildarinnar.
FRÉTTIR21.01.2025, 11:09
Manchester City hefur staðfest kaup á varnarmanninum Vitor Reis en hann er 19 ára gamall og er keyptur fyrir 30 milljónir punda frá Palmeiras í Brasilíu.
Reis er réttfættur miðvörður sem getur einnig leikið sem hægri bakvörður. Þrátt fyrir ungan aldur er hann sagður spila leikinn eins og hann hafi áratuga reynslu.
<i>„Draumur hefur ræst. Síðan ég var ungur strákur hefur mig dreymt um tækifæri á borð við þetta og að spila fyrir stórt félag eins og City,"</i> segir Brasilíumaðurinn ungi.
Reis er annar leikmaðurinn sem City kaupir í janúar, á eftir Úsbekanum Abdukodir Khusanov. Titilvörn Manchester City hefur gengið erfiðlega á tímabilinu, meðal annars vegna meiðslvandræða í vörn liðsins.
City er líklegt til að tryggja sér sóknarmanninn Omar Marmoush frá Eintracht Frankfurt áður en glugganum verður lokað.
FRÉTTIR21.01.2025, 10:04
Aston Villa hefur fengið spænska hægri bakvörðinn Andrés García frá Levante. Hann er 21 árs og kaupverðið er í kringum 6 milljónir punda.
Samkvæmt tilkynningu frá enska úrvalsdeildarfélaginu getur García einnig spilað sem hægri vængmaður. Honum er lýst sem orkumiklum leikmanni sem er með auga fyrir mörkum.
Hann hefur skorað þrjú mörk og átt þrjár stoðsendingar í 23 leikjum á þessu tímabili.
Hann er annar leikmaðurinn sem Villa fær í þessum janúarglugga en hollenski sóknarmaðurinn Donyell Malen var keyptur frá Borussia Dortmund.
FRÉTTIR21.01.2025, 07:30
Ben Brereton Diaz er mættur aftur til Sheffield United en hann kemur á láni frá Southampton. Sheffield hefur möguleika á að kaupa hann í sumar.
FRÉTTIR21.01.2025, 06:00
Miðjumaðurinn Jakub Moder er genginn til liðs við Feyenoord frá Brighton. Hann skrifar undir þriggja ára samning en hollenska liðið borgar um þrjár milljónir punda fyrir hann.
FRÉTTIR20.01.2025, 19:41
Maxwel Cornet, vængmaður West Ham, er genginn til liðs við Genoa á láni út tímabilið.
FRÉTTIR20.01.2025, 18:14
Manchester City hefur staðfest kaupin á varnarmanninum Abdukodir Khusanov frá franska liðinu Lens. Samningurinn gildir til ársins 2029.
FRÉTTIR20.01.2025, 18:00
Enski miðjumaðurinn Jonjo Shelvey hefur samið við Burnley út tímabilið. Þessi 32 ára leikmaður kemur frá tyrkneska félaginu Eyupspor þar sem samningur hans var útrunninn.
FRÉTTIR20.01.2025, 17:30
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Brotið var blað með VAR ákvörðun í ensku úrvalsdeildinni, Bruno og Jói Berg eru góðir vinir, Salah fær risatilboð frá Sádi-Arabíu og Arnar Gunnlaugsson er nýr landsliðsþjálfari Íslands.
FRÉTTIR20.01.2025, 14:35
Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við ítalska A-deildarfélagið Venezia.
Samningur hans var til 2027 en hann hefur nú framlengt um eitt ár til viðbótar og er bundinn til júní 2028.
FRÉTTIR20.01.2025, 13:57
Það var að hefjast fréttamannafundur hjá Víkingi þar sem félagið staðfesti ráðningu á Sölva Geir Ottesen sem nýjum þjálfara liðsins, eftir að Arnar Gunnlaugsson tók við íslenska landsliðinu.
Viktor Bjarki Arnarsson og Aron Baldvin Þórðarson hafa verið ráðnir hans aðstoðarmenn.
Viktor þekkir vel til hjá Víkingi þar sem hann var leikmaður og síðar yfirþjálfari yngri flokka. Hann hefur einnig starfað við þjálfun hjá KR og HK.
Aron Baldvin hefur verið þjálfari 2. flokks Víkings og starfað í teymi meistaraflokks þar sem hann hefur verið í leikgreiningu. Hann mun halda áfram að starfa við leikgreiningu í teyminu.
Allir skrifuðu undir samninga til þriggja ára en Hajrudin Cardaklija verður áfram markvarðaþjálfari, Kári Sveinsson kemur inn sem styrktarþjálfari í stað Óskars Arnar Haukssonar og Grímur Andri Magnússon kemur nýr inn í teymið sem leikgreinandi.
FRÉTTIR20.01.2025, 12:15
Þróttur heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna í sumar því Klara Mist Karlsdóttir er gengin í raðir félagsins en hún kemur frá Fylki.
Klara er uppalin hjá Stjörnunni og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með uppeldisfélaginu sumarið 2021. Hún var lánuð til Fylkis sumarið 2022 og seinni hluta sumarsins 2023 áður en hún skipti alfarið til Fylkis.
Eftir að Fylkir féll úr Bestu deildinni síðasta haust yfirgaf Klara herbúðir félagsins. Hún var með uppsagnarákvæði í samningi sínum við Fylki sem hún nýtti sér og er nú búin að semja við Þrótt út tímabilið 2027.
FRÉTTIR20.01.2025, 10:38
Elísabet Gunnarsdóttir hefur verið ráðin þjálfari belgíska kvennalandsliðsins en þetta var staðfest í morgun.
Það eru því fjórir Íslendingar starfandi sem þjálfarar A-landsliða, auk íslensku liðanna þar sem Arnar Gunnlaugsson og Þorsteinn Halldórsson halda um stjórnartaumana er Heimir Hallgrímsson með írska karlalandsliðið.
Í tilkynningu frá belgíska sambandinu segir að Elísabet hafi skrifað undir samning til sumarsins 2027 og ferðist til Belgíu í vikunni.
Belgía er í 19. sæti styrkleikalista FIFA (Ísland er í fjórtánda sæti) og verður eins og Ísland meðal þátttökuþjóða á EM í sumar. Belgía er með Portúgal, Ítalíu og Spáni í riðli.
<i>„Ég hlakka til að þjálfa liðið, sérstaklega þar sem EM er í sjónmáli. Belgía hefur tekið miklum framförum í kvennabolta undanfarin ár og búið er að byggja upp sterkt landslið sem er bæði með reynslumiklum og ungum leikmönnum. Saman getum við náð góðum úrslitum,"</i> segir Elísabet við heimasíðu sambandsins.
FRÉTTIR20.01.2025, 10:23
William Eskelinen, sem varði mark Vestra á síðasta tímabili, er orðinn leikmaður AC Oulu sem spilar í finnsku úrvalsdeildinni.
Eskelinen er 28 ára Svíi sem gekk í raðir Vestra síðasta vetur og átti heilt yfir nokkuð gott tímabil í Bestu deildinni, lék sérstaklega vel eftir að hann var harðlega gagnrýndur af þjálfara sínum í viðtali fyrri hluta móts.