Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25201 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR17.02.2023, 11:59

Oliver Stefánsson í Breiðablik (Staðfest)

Breiðablik tilkynnti rétt í þessu að Oliver Stefánsson væri búinn að skrifa undir samning við félagið. Greint var frá því fyrir viku síðan að Oliver væri á leið í Breiðablik en nú er allt frágengið og búið að gang a frá samningi. Samningurinn gildir út tímabilið 2025. Hann kemur frá Norrköping þar sem hann hefur verið á mála frá því haustið 2018.

FRÉTTIR16.02.2023, 17:45

Gotti rekinn frá Spezia (Staðfest)

Spezia er án þjálfara eftir að hafa rekið Luca Gotti úr starfi í gær en þetta kom fram í tilkynningu félagsins.

FRÉTTIR16.02.2023, 08:00

Rekinn í annað sinn á einum mánuði (Staðfest)

Ítalski þjálfarinn Davide Nicola tókst að afreka það að vera rekinn frá Salernitana tvisvar á 31 degi en ítalska félagið staðfesti brottför hans í gær og er Paulo Sousa nýr þjálfari liðsins.

FRÉTTIR14.02.2023, 15:11

Baraja nýr stjóri Valencia (Staðfest)

Valencia á Spáni hefur ráðið Ruben Baraja sem nýjan stjóra en þessi fyrrum miðjumaður liðsins er í dag 47 ára og er tíundi fastráðni stjóri félagsins á innan við níu árum. Gennaro Gattuso var rekinn frá Valencia í síðasta mánuði, eftir aðeins sjö mánuði í starfi.

FRÉTTIR14.02.2023, 13:57

Andri Rúnar í Val (Staðfest)

Andri Rúnar Bjarnason er genginn í raðir Vals. Samningurinn er til eins árs með möguleika á framlengingu. Andri lék með ÍBV í fyrra en rifti samningi sínum eftir tímabilið. Hann er 32 ára sóknarmaður sem skoraði 10 mörk í 25 leikjum fyrir Eyjamenn á síðasta tímabili.

FRÉTTIR14.02.2023, 12:53

Spilaði bikarúrslitaleikinn en verður í 4. deild í sumar (Staðfest)

Markvörðurinn Atli Gunnar Guðmundsson hefur fengið félagaskipti í KFK sem verður í 4. deildinni í vetur. KFK er stórhuga og ætlar sér upp úr 4. deildinni í sumar. Atli varði mark FH í tólf deildarleikjum og fimm bikarleikjum, þar á meðal í sjálfum bikarúrslitaleikurinn gegn Víkingi.

FRÉTTIR14.02.2023, 07:20

Vitor aftur í KF (Staðfest)

<p>Vitor Vieira Thomas, miðjumaður fæddur 1999, er kominn aftur til uppeldisfélagsins KF eftir að hafa reynt fyrir sér með Víkingi Ólafsvík.</p>

FRÉTTIR13.02.2023, 18:21

Mbabu aftur til uppeldisfélagsins (Staðfest)

<p>Svissneski landsliðsbakvörðurinn Kevin Mbabu heldur heim til uppeldisfélagsins Servette, þar sem hann mun leika á láni frá Fulham út tímabilið.</p>

FRÉTTIR13.02.2023, 16:35

Ástralskur sóknarmaður í Keflavík (Staðfest) - Reynst vel síðustu ár

Keflavík tilkynnti í dag að félagið hefði fengið ástralskan sóknarmann í sínar raðir. Keflvíkingar þekkja það vel að vera með ástralskan sóknarmann því Joey Gibbs lék með liðinu við góðan orðstír síðustu tímabil en ákvað að söðla um í vetur og semja við Stjörnuna. Gibbs skoraði samanlagt 41 mark í 68 deildar- og bikarleikjum með Keflavík.

FRÉTTIR13.02.2023, 06:00

KF fær spænskan reynslubolta sem þekkir til á Íslandi (Staðfest)

KF tilkynnti í gær að spænski varnarmaðurinn Fransisco Eduardo Cruz Lemaur, eða einfaldlega bara Edu Cruz, væri genginn í raðir félagsins og mun leika með liðinu í 2. deild í sumar. Edu er fæddur árið 1987 og er reynslumikill leikmaður. Hann hefur áður spilað á Íslandi, lék með Grindavík tímabilin 2016 og 2017, seinna tímabilið lék hann tíu leiki í efstu deild.

FRÉTTIR12.02.2023, 10:15

Jones rekinn eftir þrjá mánuði í starfi (Staðfest)

Southampton er búið að reka Nathan Jones eftir aðeins þrjá mánuði við stjórnvölinn hjá enska úrvalsdeildarfélaginu. Jones er fyrrum stjóri Luton Town og skilur við Dýrlingana í neðsta sæti eftir tap gegn tíu leikmönnum Wolves í gær.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.