Fotbolti.net
12.02.23 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Daníel Gylfason kominn heim til Keflavíkur (Staðfest)

Daníel Gylfason kominn heim til Keflavíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík er búið að krækja í Daníel Gylfason frá Kórdrengjum og spilaði hann með liðinu gegn Stjörnunni í Þungvigtabikarnum á dögunum.

Daníel er fæddur 1993 og hefur verið í mikilvægu hlutverki í liði Kórdrengja undanfarin ár. Hann missti aðeins af einum leik í Lengjudeildinni í fyrra.

Hann er uppalinn hjá Keflavík og á 24 leiki að baki fyrir félagið í efstu deild. Hann snýr aftur til félagsins í efstu deild eftir að liðið endaði í sjöunda sæti í fyrra, með 37 stig úr 27 leikjum.

Daníel mun auka breiddina í liði Keflvíkinga sem eiga spennandi tímabil í Bestu deildinni framundan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.