Fotbolti.net
16.02.23 - 17:45
Brynjar Ingi Erluson

Gotti rekinn frá Spezia (Staðfest)

Gotti rekinn frá Spezia (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Spezia er án þjálfara eftir að hafa rekið Luca Gotti úr starfi í gær en þetta kom fram í tilkynningu félagsins.
Gotti var ráðinn til Spezia síðasta sumar en þar á undan stýrði hann Udinese í tvö ár.

Á þessu tímabili hefur Spezia aðeins unnið fjóra leiki af 22 í deildinni og situr í 17. sæti með 19 stig.

Hann var látinn taka poka sinn í gær og það á sama tíma og Salernitana rak Davide Nicola.

Spezia hefur aðeins unnið einn leik eftir HM en liðið er að spila þriðja tímabilið í röð í efstu deild eftir að hafa spilað í neðri deildunum til fjölda ára.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.