Jones rekinn eftir þrjá mánuði í starfi (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Southampton er búið að reka Nathan Jones eftir aðeins þrjá mánuði við stjórnvölinn hjá enska úrvalsdeildarfélaginu.
Jones er fyrrum stjóri Luton Town og skilur við Dýrlingana í neðsta sæti eftir tap gegn tíu leikmönnum Wolves í gær.
Jones er fyrrum stjóri Luton Town og skilur við Dýrlingana í neðsta sæti eftir tap gegn tíu leikmönnum Wolves í gær.
Sá velski tapaði níu af fjórtán leikjum í öllum keppnum eftir að hann var ráðinn þann 10. nóvember. Þar af voru átta tapleikir af níu úrvalsdeildarleikjum og fjórir tapleikir í röð á heimavelli, St Mary's.
Chris Cohen og Alan Sheehan aðstoðarmenn hans hafa einnig yfirgefið félagið en Ruben Selles sem er í þjálfarateyminu mun stýra leiknum gegn Chelsea næsta laugardag.
Stuðningsmenn Southampton bauluðu eftir tapið gegn Wolves í gær. Southampton komst í 1-0 og þrátt fyrir að Úlfarnir misstu mann af velli með rautt spjald náðu þeir að snúa dæminu við og tryggja sér sigur.
Fyrir viku síðan, í tapi gegn Brentford, mátti heyra sungið í stúkunni: 'Þú verður rekinn á morgun' og 'Nathan Jones, farðu út úr félaginu okkar'.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 0 | 0 | 0 |
| 2 | Aston Villa | 0 | 0 | 0 |
| 3 | Bournemouth | 0 | 0 | 0 |
| 4 | Brentford | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Brighton | 0 | 0 | 0 |
| 6 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 7 | Coventry | 0 | 0 | 0 |
| 8 | Crystal Palace | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Everton | 0 | 0 | 0 |
| 10 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 11 | Hull City | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Ipswich Town | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Leeds | 0 | 0 | 0 |
| 14 | Liverpool | 0 | 0 | 0 |
| 15 | Manchester City | 0 | 0 | 0 |
| 16 | Manchester Utd | 0 | 0 | 0 |
| 17 | Newcastle | 0 | 0 | 0 |
| 18 | Nott. Forest | 0 | 0 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 19 | Sunderland | 0 | 0 | 0 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |
| 20 | Tottenham | 0 | 0 | 0 |