Fram fær tvo leikmenn frá Bandaríkjunum (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kvennalið Fram hefur fengið tvo öfluga leikmenn frá Bandaríkjunum en þær Grace Santos og Breukelen Woodard hafa gert samning um að spila með félaginu á komandi tímabili.
Santos býr yfir mikilli tækni og hefur gríðarlegan leikskilning en hún spilar stöðu miðjumanns. Hún hefur spilað fyrir bæði háskólann í Arizona og í Virginia.
Woodard er á meðan sóknarsinnaður miðjumaður og getur leyst allar stöður fremst á vellinum. Hún gerði 21 mark í 24 leikjum með Penn-háskólanum á síðasta tímabili og lagði upp fimm mörk ofan á það.
Fram, sem vann 2. deildina í fyrra, mun spila í Lengjudeildinni á komandi tímabili og koma þær Santos og Woodard til með að styrkja hópinn til muna.

Mynd: Fram

Mynd: Fram