FRÉTTIR01.02.2023, 17:00
Boubacar Traore verður formlega leikmaður Wolves þann 1. júlí í sumar. Traore er á láni hjá félaginu frá franska félaginu Metz en Úlfarnir virkjuðu ákvæði í samningnum og gengu frá kaupum á leikmanninum í dag.
Traore er landsliðsmaður Malí sem Wolves gat keypt þegar ákveðin skilyrði voru uppfyllt. Búið er að uppfylla þau og ganga frá kaupunum.
FRÉTTIR01.02.2023, 16:40
Unglingalandsliðsmaðurinn Óliver Steinar Guðmundsson er búinn að skrifa undir samning við Val. Hlíðarendafélagið var að tilkynna þetta fyrir stuttu.
Það var Fótbolti.net sem greindi fyrst frá því að Óliver væri á heimleið og svo að hann væri á leið í Val.
FRÉTTIR01.02.2023, 16:15
Valur hefur gengið frá kaupum á Lúkasi Loga Heimissyni frá Fjölni en þetta kemur fram í tilkynningu Hlíðarendafélagsins.
FRÉTTIR01.02.2023, 15:46
Stjarnan tilkynnti í dag að Erin McLeod, fyrrum markvörður liðsins og fyrrum markvörður kanadíska landsliðsins, væri mætt aftur til félagsins.
Hún er eiginkona Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur sem tilkynnt var hjá Stjörnunni í síðustu viku. Erin lék á láni hjá Stjörnunni hluta af sumrinu 2020. Hún er 39 ára gömul og flutti til Íslands ásamt Gunnhildi í upphafi árs.
FRÉTTIR01.02.2023, 07:30

Hinn 33 ára gamli Marc Albrighton er genginn til liðs við West Brom á láni frá Leicester.

FRÉTTIR01.02.2023, 07:00

Southampton nældi í tvo leikmenn í gær en það voru þeir Kaladeen Sulemana sem kom frá Stade Rennais og Paul Onuachu frá Genk.

FRÉTTIR01.02.2023, 06:00
Hinn 25 ára gamli Alex Tuanzebe er genginn til liðs við Stoke á láni frá Manchester United.
FRÉTTIR01.02.2023, 06:00

Fulham staðfesti komu Cedric Soares frá Arsenal á láni eftir miðnætti. Hann hittir þar fyrir fyrrum stjóra sinn hjá Sporting, Marco Silva.

FRÉTTIR01.02.2023, 06:00

Oskar Wasilewski er genginn til liðs við Selfoss en hann gerir tveggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR01.02.2023, 00:43

Enzo Fernandez er genginn til liðs við Chelsea frá Benfica en hann skrifar undir átta og hálfs árs samning. Benfica hefur staðfest skiptin.

FRÉTTIR01.02.2023, 00:19

Manchester United hefur staðfest komu Marcel Sabitzer til félagsins á láni frá Bayern Munchen út þessa leiktíð.

FRÉTTIR31.01.2023, 23:55

Miðvörðurinn Harry Souttar er genginn til liðs við Leicester frá Stoke City en hann gerir fimm og hálfs árs samning.

FRÉTTIR31.01.2023, 23:24

Reynsluboltinn Keylor Navas er síðastur til að ganga til liðs við Nottingham Forest á þessari leiktíð.

FRÉTTIR31.01.2023, 23:11

Eins og kom fram fyrr í kvöld var Jonjo Shelvey mættur á St. James' Park í kvöld til að kveðja stuðningsmenn Newcastle en þessi þrítugi miðjumaður er genginn til liðs við Nottingham Forest.

Hann gerir tveggja og hálfs árs samning við Forest. Hann mun klæðast treyju númer sex.

FRÉTTIR31.01.2023, 23:01
Spænski hægri bakvörðurinn Pedro Porro er genginn til liðs við Tottenham frá Sporting á láni út tímabilið en Tottenham mun síðan festa kaup á honum í sumar.
FRÉTTIR31.01.2023, 22:38

Hector Bellerin er genginn til liðs við Sporting Lisbon frá Barcelona. Hann gerir samning við portúgalska félagið út þessa leiktíð.

FRÉTTIR31.01.2023, 22:21

Crystal Palace hefur styrkt miðjuna sína á þessum gluggadegi en Albert Sambi Lokonga er mættur til liðsins á láni frá Arsenal.

Félagið staðfesti kaup á miðjumanninum Naouirou Ahamada fyrr í kvöld.

FRÉTTIR31.01.2023, 22:11

Tottenham hefur tilkynnt að liðið hafi náð samkomulagi við Matt Doherty um að rifta samningnum hans til að hann gæti verið frjáls ferða sinna.

FRÉTTIR31.01.2023, 22:00
Fótbolti.net fylgist með öllu því helsta sem gerist á gluggadeginum í beinni textalýsingu. Glugganum verður lokað klukkan 23:00 í ensku úrvalsdeildinni.
Smelltu hér til að fara í kvöldvaktina
Hér koma inn allar helstu slúðursögurnar sem eru í gangi, staðfestar fréttir og ýmsar vangaveltur. Það er Domino's sem færir þér Gluggavaktina á Fótbolta.net.
Sjá einnig:
Gluggadagvaktin - Tíðindi og slúður dagsins
FRÉTTIR31.01.2023, 21:55

Felipe hefur skrifað undir eins og hálfs árs samning við Nottingham Forest en hann gengur til liðs við félagsins frá Atletico Madrid.