Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 31. janúar 2023 23:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pedro Porro mættur til Tottenham (Staðfest)
Mynd: Tottenham
Spænski hægri bakvörðurinn Pedro Porro er genginn til liðs við Tottenham frá Sporting á láni út tímabilið en Tottenham mun síðan festa kaup á honum í sumar.

Porro gekk til liðs við Manchester City árið 2019 en var mest megnis á láni frá enska félaginu. Hann fór á tveggja ára lán til Sporting árið 2020 og portúgalska félagið festi kaup á honum síðasta sumar.

Hann lék 98 leiki fyrir Sporting og skoraði 12 mörk.

Þá er búið að loka ákveðnum hring en Matt Doherty fór frá Tottenham til Atletico, Hector Bellerin fór frá Barcelona til Sporting og nú er Porro mættur til Tottenham frá Sporting.


Athugasemdir
banner
banner