Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 01. febrúar 2023 16:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Búast ekki við að Cancelo komi aftur og horfa nú á aðra möguleika
Ben Chilwell.
Ben Chilwell.
Mynd: EPA
Manchester City gerir ráð fyrir því að Joao Cancelo sé búinn að leika sinn síðasta fyrir félagið.

Cancelo var lánaður til Bayern München á gluggadeginum í gær. Þýskalandsmeistararnir eru með ákvæði um að geta keypt hann á 61,5 milljónir punda næsta sumar.

Spiltími þessa 28 ára leikmanns hafði farið minnkandi hjá City og fjallað var um ósætti milli hans og Pep Guardiola, stjóra City.

Núna segir Times frá því að City sé byrjað að skoða arftaka fyrir Cancelo og þar sé efstur á lista Ben Chilwell, leikmaður Chelsea.

Pep Guardiola, stjóri City, hafði áhuga á því að fá Chilwell áður en hann fór til Chelsea á sínum tíma. Chilwell hefur verið mikið meiddur hjá Chelsea og er með mikla samkeppni þar í Marc Cucurella. Möguleiki er á því að City muni reyna að fá hann næsta sumar.
Athugasemdir
banner