Serse Cosmi er nýr þjálfari Crotone í Seríu A en félagið staðfesti ráðninguna í kvöld.
Giovanni Stroppa var látinn taka poka sinn hjá Crotone á dögunum en hann náði aðeins í 12 stig í 24 leikjum og situr liðið í neðsta sæti deildarinnar, átta stigum frá öruggu sæti.
Cosmi mun taka við liðinu út þetta tímabil en hann hefur komið víða við á þjálfaraferlinum.
Hann þjálfaði síðast lið Perugia í C-deildinni en hann hefur einnig þjálfað lið á borð við Venezia, Ascoli, Palermo, Lecce og Siena.
Fyrsti leikur Cosmi er gegn Atalanta á miðvikudag.
Athugasemdir