15.11.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Tuchel ósáttur með spænsku fréttamennina

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands er spenntur fyrir risaslagnum gegn Spáni í Þjóðadeildinni í kvöld.

TENGT EFNI
Englendingar tilbúnir ef þeir verða varir við fordóma
Liðin mætast í úrslitaleik um toppsæti riðilsins og þurfa Englendingar sigur til að hirða efsta sætið af heims- og Evrópumeisturunum á Spáni.
Spænskur fréttamaður spurði Tuchel hvort enska landsliðið væri tilbúið að bregðast við ef það yrði vart við kynþáttafordóma frá áhorfendapöllunum í Madríd. Tuchel svaraði að liðið myndi líklegast fara aftur yfir verkferla UEFA í undirbúningi fyrir leikinn.
Fréttamaðurinn spurði svo Luis de la Fuente, landsliðsþjálfara Spánverja, út í ummæli Tuchel og lét það hljóma eins og Tuchel hafi sagt að hann byggist við fordómum úr stúkunni.
„Ég talaði aldrei um rasisma á Spáni. Ég svaraði spurningu kurteisislega um hvað gerist ef menn verða varir við fordóma úr stúkunni. Ég býst aldrei við því að fólk sýni fordómafulla hegðun," sagði Tuchel.
„Ég var kurteis og svaraði spurningu frá samstarfsmönnum þínum og svo hlaupið þið til hins þjálfarans og segið við hann að ég hafi verið að tala um rasisma á Spáni? Þetta er nákvæmlega það sem er að í íþróttafréttamennsku. Þið sýnduð fullkomið dæmi um hvernig þetta ætti ekki að virka. Þið eruð að reyna að skapa rugling og sundrungu yfir engu.
„Ég vil segja við spænska áhorfendur að orðin sem þeir hafa lesið í fjölmiðlum eru ekki rétt eða tekin úr samhengi. Ég hef alltaf sagt að ég búist við vinalegri stemningu og frábærum fótboltaleik. Ég býst ekki við fordómum og verð hissa ef áhorfendur sýna svoleiðis hegðun. Ég býst aldrei við fordómum og er fyrsta manneskjan sem berst gegn þeim. Fótbolti á að sameina fólk, ekki stía því í sundur."