Höddi: Menn eru eitthvað klikkaðir ef þeir halda þetta sé hreinsun
„Góður leikur, gott að geta skorað fimm mörk og klárað þetta vel. En svona svekkelsi að ég vissi ekki að ég var á gulu spjaldi þannig að ég ákvað að stoppa sókn og gera það vel, en síðan fattaði ég að það voru að þá komin tvö gul sem kemur mér í þetta bann. Það kemur bara maður í manns stað og við erum þéttir þannig að svona er þetta. En góður leikur þrátt fyrir það," segir Hörður Björgvin Magnússon við Fótbolta.net eftir öruggan sigur Íslands á Búlgaríu í Þjóðadeildinni.
Eins og Hörður segir fékk hann gult spjald í leiknum og verður því í leikbanni gegn Lúxemborg á mánudaginn.