16.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Héldum að þetta gæti ekki versnað

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jürgen Klopp, landsliðsþjálfari Þýskalands, tjáði sig um yfirvofandi forsetakosningar FIFA sambandsins þar sem evrópska fótboltasambandið, UEFA, vill fá Gianni Infantino úr forsetastólnum.

TENGT EFNI
Wenger ætlar ekki upp á móti Infantino
Klopp er ekki hrifinn af Infantino og þráir að sjá einstakling sem ber raunverulega ást fyrir fótbolta í forsetastólnum, einstakling sem hefur ekki áhuga á að auka fjárhagslegan ávinning sinn umfram það sem viðkomandi fær í laun fyrir starf sitt í þágu fótboltans.
„Það eru allir sammála um að það sé kominn tími á breytingu," sagði Klopp á fréttamannafundi fyrir leik Þýskalands gegn Hollandi í Þjóðadeildinni. Þar átti hann við aðildarsamböndin í Evrópu sem vilja fá Infantino burt, en Infantino hefur tekist að fá aðildarsambönd um allan heim á sitt band með loforðum um auknar fjárveitingar frá FIFA.
„Við héldum að hlutirnir gætu ekki versnað eftir Sepp Blatter, en svo fengum við þetta. Ég veit að það er til fólk í heiminum sem elskar fótbolta og er alveg sama um fjárhagslegan ávinning umfram það sem eðlilegt er.
„Það væri mjög hjálpsamlegt ef einhver af þeim yrði gerður að forseta FIFA!"