15.11.26 - 18:56
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin: Albanía tryggði sig í B-deild - Finnar skoruðu sjö

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það fóru fjórir leikir fram í C-deild Þjóðadeildarinnar í dag þar sem Albanía tryggði sér toppsæti síns riðils með sigri í úrslitaleik á útivelli gegn Belarús.
Rey Manaj, sem hefur meðal annars komið við hjá Inter, Barcelona og Watford á sínum ferli, skoraði í fyrri hálfleik og innsiglaði varnarmaðurinn þaulreyndi Elseid Hysaj sigurinn í síðari hálfleik.
32 ára Hysaj hefur verið samningslaus síðan samningur hans við Lazio rann út síðasta sumar. Sigurinn tryggir Albaníu sæti í B-deildinni á næstu leiktíð í Þjóðadeildinni, á meðan Belarús fær umspilsleik um sæti í B-deild.
Finnar enda í þriðja sæti eftir auðveldan stórsigur gegn San Marínó, sem tókst þó að skora tvö mörk í Helsinki. Finnar eru jafnir Belarús á stigum og með betri markatölu, en fá ekki annað sætið út af innbyrðisviðureignum. Þjóðirnar skildu jafnar þegar þær mættust í Finnlandi en Belarús vann heimaleikinn í október.
Svartfjallaland var þegar búið að tryggja sér toppsætið í sínum riðli og innsiglaði það með auðveldum sigri í Kýpur, sem endar í öðru sæti og fær umspilsleik. Nikola Krstovic hefur verið funheitur í ítalska boltanum og setti tvennu í dag.
Svartfellingar enda riðilinn með 16 stig eftir 5 sigra og 1 jafntefli. Kýpur endar með 8 stig og fylgja Armenía og Lettland þar á eftir, eftir að hafa gert markalaust jafntefli innbyrðis í dag.
Belarús 0 - 2 Albanía
0-1 Rey Manaj ('28 )
0-2 Elseid Hysaj ('57 )
Finnland 7 - 2 San Marínó
1-0 Adrian Svanback ('8 )
2-0 Leo Walta ('17 )
3-0 Adrian Svanback ('20 )
3-1 Nicola Nanni ('26 , víti)
4-1 Joel Pohjanpalo ('36 )
5-1 Joel Pohjanpalo ('42 )
6-1 Daniel Hakans ('70 )
6-2 Nicola Nanni ('76 )
7-2 Adrian Svanback ('78 )
Kýpur 1 - 4 Svartfjallaland
0-1 Milutin Osmajic ('5 )
1-1 Ioannis Pittas ('52 , víti)
1-2 Milan Vukotic ('58 )
1-3 Nikola Krstovic ('67 )
1-4 Nikola Krstovic ('83 )
Lettland 0 - 0 Armenía