Fotbolti.net
01.03.26 - 16:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Sesko fullkomnaði endurkomu Man Utd - Tottenham í brasi

Bruno Fernandes skorar úr vítinu

Bruno Fernandes skorar úr vítinu

Canon

Mynd: EPA

Þrír leikir fóru fram klukkan 14 í úrvalsdeildinni dag. Man Utd lenti í vandræðum með Crystal Palace á Old Trafford. Maxence Lacroix kom Palace yfir snemma leiks þegar hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu.
Man Utd sá ekki til sólar fyrsta hálftímann en komst betur inn í leikinn eftir því sem leið á en náði ekki að skora í fyrri hálfleik.

Heimamenn fengu vítaspyrnu eftir tæplega klukkutíma leik þegar Lacroix reif Matheus Cunha niður í teignum og uppskar rautt spjald. Bruno Fernandes skoraði úr vítinu og jafnaði metin fyrir Man Utd.

Benjamin Sesko reyndist hetja Man Utd þegar hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Fernandes. Amad Diallo var nálægt því að bæta þriðja markinu við undir lokin en Dean Henderson varði vel frá honum.

Man Utd er komið upp í 3. sæti með 51 stig, jafn mörg stig og Aston Villa sem er í 4. sæti. Crystal Palace er í 14. sæti með 35 stig.

Tottenham er án stiga eftir fyrstu tvo leikina undir stjórn Igor Tudor en liðið tapaði gegn Fulham í dag.

Harry Wilson kom Fulham yfir snemma leiks og hann lagði síðan upp á Alex Iwobi. Richarlison náði að minnka muninn fyrir Tottenham en nær komust þeir ekki. Tottenham er í 16. sæti með 29 stig, aðeins fjórum stigum frá fallsæti en Fulham er í 9. sæti með 40 stig.

Það var fjörleg byrjun í Brighton þar sem Nottingham Forest var í heimsókn.

Fulham 2 - 1 Tottenham
1-0 Harry Wilson ('7 )
2-0 Alex Iwobi ('34 )
2-1 Richarlison ('66 )

Manchester Utd 2 - 1 Crystal Palace
0-1 Maxence Lacroix ('4 )
1-1 Bruno Fernandes ('57 , víti)
2-1 Benjamin Sesko ('65 )
Rautt spjald: Maxence Lacroix, Crystal Palace ('56)

Brighton 2 - 1 Nott. Forest
1-0 Diego Gomez ('6 )
1-1 Morgan Gibbs-White ('13 )
2-1 Danny Welbeck ('15 )
England: Sesko fullkomnaði endurkomu Man Utd - Tottenham í brasi
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1817
4Chelsea8+213
5Liverpool8+113
6Brentford8+511
7Aston Villa8-311
8Leeds7+310
9Hull City8+110
10Everton8-110
11Ipswich Town8-410
12Tottenham8-29
13Newcastle8-49
14Man Utd808
15Fulham8-28
16Crystal Palace8-88
17Bournemouth8-47
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.