Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 01. maí 2021 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sammála um einkunn Gylfa í kvöld
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson spilaði 82 mínútur þegar Everton tapaði fyrir Aston Villa á heimavelli í kvöld.

Jordan Pickford, markvörður Everton, var maður leiksins að mati Liverpool Echo. Hann fær níu í einkunn hjá staðarmiðlinum.

Gylfi fær 6 í einkunn hjá sama miðli en hann er þá í efri helmingnum á meðal leikmanna Everton, það er að segja í betri helmingnum.

„Átti nokkur álitleg skot í fyrri hálfleik sem var komist fyrir. Ákvörðunartaka hans í seinni hálfleik hefði getað verið betri," segir í umsögn um íslenska landsliðsmanninn.

Gylfi fékk einnig sex í einkunn hjá Sky Sports.

Everton er áfram í áttunda sæti. Það verður gríðarlega erfitt fyrir Everton að ná Meistaradeildarsæti úr þessu. Liðið er níu stigum á eftir Chelsea í fjórða sæti en með leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner