06.10.26 - 10:47
Kári Snorrason
Sjö ár síðan Ísland vann þrjá leiki í röð

Jón Daði Böðvarsson var meðal markaskorara gegn Moldóvu þegar Ísland vann síðast þrjá leiki í röð.

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Ísland hefur nú unnið tvo leiki í röð.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland mætir Eistlandi í Tallinn í kvöld í C-deild Þjóðadeildarinnar. Um er að ræða síðasta leik liðsins í yfirstandandi fjögurra leikja landsleikjaglugga.
Ísland er á toppi riðilsins með sjö stig, tveimur stigum á undan Eistlandi sem situr í 2. sæti. Efsta lið riðilsins tryggir sér sæti í B-deildinni en liðið sem hafnar í öðru sæti fer í umspil um sæti í B-deild.

TENGT EFNI
96% líkur á að Ísland komist aftur upp í B-deildina
Ísland hefur unnið tvo leiki í röð, gegn Lúxemborg á útivelli og Búlgaríu á heimavelli. Liðið fær því tækifæri í kvöld til að vinna þrjá keppnisleiki í röð í fyrsta sinn í sjö ár.
Það gerðist síðast árið 2019 í undankeppni EM þegar Ísland vann Albaníu, Tyrkland og Moldóvu. Allir þrír leikirnir fóru fram á Laugardalsvelli.
Með sigrinum á Búlgaríu á laugardaginn tókst Íslandi jafnframt að vinna tvo keppnisleiki í röð í fyrsta sinn síðan í sömu sigurhrinu árið 2019.
Ísland er talið mun sigurstranglegra liðið fyrir leik kvöldsins. Veðbankinn Epicbet er með stuðulinn 1,60 á sigur Íslands en 6,02 á sigur Eistlands. Jafntefli er með stuðulinn 4,09.