Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   fös 01. maí 2026 22:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Erum ekki stoltir af okkur"
Mynd: EPA
Burnley tapaði gegn Leeds 3-1 í úrvalsdeildinni í kvöld. Liðið féll formlega úr deildinni eftir tap gegn Man City um síðustu helgi.

Burnley hefur verið í vandræðum allt tímabilið og aðeins stafnað tuttugu stigum. Maxime Esteve, varnarmaður liðsins, ræddi við Sky Sports eftir leik kvöldsins.

„Við byrjuðum mjög illa, það sama má segja um byrjunina á seinni hálfleik. Það sama gerðist á móti Nottingham Forest, öll lið refsa okkur þegar við missum skriðþunga og við fáum á okkur mark," sagði Esteve.

„Við tökum ábyrgð á öllu, það er ekki vandamál. Við eigum þrjá leiki eftir, við reynum að gefa allt í þetta fyrir okkur, til að vera stoltir af okkur. Ég veit að við erum ekki stoltir af okkur út af því hvernig tímabilið hefur verið en við erum líka keppnismenn."
Slapp
banner
banner