Fotbolti.net
09.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fjórir ungir framlengja við Þór

Fjórir ungir framlengja við Þór
Canon

Mynd: Þór

Fjórir ungir Þórsarar hafa skrifað undir nýja samninga við félagið. Það eru þeir Kjartan Ingi Friðriksson, Kári Jónsson, Ólíver Sesar Bjarnason og Víðir Jökull Valdimarsson.
Víðir er 19 ára gamall markvörður sem gekk til liðs við félagið í fyrra frá Val. Hann var hluti af 2. flokki Þórs sem varð Íslandsmeistari í fyrra. Hann var á láni hjá Magna í 2. deild síðasta sumar og spilaði 15 leiki.

Kjartan er 18 ára miðjumaður og var fyrirliði 2. flokks í fyrra. Kári er 18 ára gríðarlega fjölhæfur leikmaður og Ólíver Sesar Bjarnason er 17 ára miðjumaður.

Þeir eru allir uppaldir hjá félaginu og fögnuðu Íslandsmeistaratitlum með 2., 3., og 4. flokki. Kjartan og Kári semja til næstu tveggja ára en Óliver skrifaði undir þriggja ára samning.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.