Fotbolti.net
08.11.26 - 19:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Emery fór of snemma inn í klefa - „Hélt að leikurinn væri búinn"

Emery fór of snemma inn í klefa - „Hélt að leikurinn væri búinn"
Canon

Mynd: EPA

Unai Emery, stjóri Aston villa, kláraði ekki leikinn gegn Man Utd á hliðarlínunni en hann fór inn í klefa stuttu eftir að Man Utd jafnaði metin í blálokin.
Aston Villa var 4-2 yfir þegar uppbótatíminn hófst en mörk frá Joshua Zirkzee og Patrick Dorgu björguðu stigi fyrir United.

„Þetta voru ekki tilfinningar. Þeir skoruðu á 96. mínútu og það voru sex mínútum bætt við. Ég hélt að leikurinn væri búinn," sagði Emery.

Pat Davison hjá Sky Sports hélt áfram að spyrja Emery út í þetta en Emery reyndi að útskýra að hann hafi ekki verið ósáttur við að markið hafi staðið og hélt hreinlega að það væri búið að flauta leikinn af.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.