09.11.26
Messi kvaddi Argentínu á ógleymanlegan hátt - sjö augnablik á glæstum 21 árs landsliðsferli
ÍVAR BJÖRGVINSSON
Cristiano Ronaldo tilkynnti fyrir nokkrum dögum síðan að hann væri að kveðja portúgalska landsliðið og ákvað Fótbolti.net því að henda í samantekt um stærstu atriðin á hans landsliðsferli. Þar sem aðeins rúmum tveimur mánuðum áður hafði Lionel Messi tekið sömu ákvörðun hjá Argentínu er því tilvalið að gera það sama fyrir Argentínumanninn. Messi, sem er 39 ára gamall, lauk 21 árs landsliðsferli sínum með 208 landsleiki og 126 mörk að baki, auk þess að hafa orðið heimsmeistari og tvívegis Suður-Ameríkumeistari.
Ferill Messi með argentínska landsliðinu var þó langt frá því að vera ein samfelld sigurganga. Hann þurfti lengi að sæta gagnrýni í heimalandinu og tapaði fjórum stórum úrslitaleikjum áður en langþráðu titlarnir fóru að skila sér. Fótbolti.net tók saman sjö eftirminnileg augnablik úr landsliðsferli eins besta knattspyrnumanns sögunnar.