Fotbolti.net
09.11.26 - 09:30
Sævar Þór Sveinsson

Launakostnaður Þór/KA var 27 milljónir króna á síðasta ári

Utan Vallar

KA tilkynnti í síðustu vika að félagið hefði tekið þá ákvörðun að endurnýja ekki samstarfssamning félagsins við Þór um kvennaliðið Þór/KA. Á áskriftarvef Fótbolti.net var farið yfir ársreikinga síðustu ára hjá Þór/KA og rýnt í tölurnar.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 8. nóvember á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Á síðasta ári námu rekstrartekjur Þór/KA samtals 59 milljónum króna sem var lækkun upp á rúmlega 8,4% frá árinu áður þegar tekjurnar námu hátt í 65 milljónum króna. Langsamlega stærsti hluti tekna Þór/KA hefur síðustu árin verið tekjuliðurinn framlög og styrkir. Í skýringum með ársreikningnum má svo sjá meðal annars að miðasölutekjur námu 3,2 milljónum króna, útsendingarréttur vegna Íslandsmótsins var 1,7 milljón króna og útsendingarréttur vegna Mjólkurbikarsins voru 250 þúsund krónur.

Rekstrargjöld síðasta árs námu 55,6 milljónum króna og lækkuðu um tæp 13% á milli ára eftir að hafa verið 64,4 milljónir króna árið áður. Síðustu fimm árin hefur launakostnaður verið stærsti útgjaldaliðurinn hjá Þór/KA, að árinu 2024 undanskildu. Á síðasta ári var launakostnaðurinn samtals 27 milljónir króna og af þeim fóru hátt í 14 milljónir króna í launakostnað leikmanna en 13 milljónir króna í launakostnað þjálfarateymisins. 

UTAN VALLAR: Þór/KA velti 59 milljónum króna á síðasta ári
TENGT EFNI

UTAN VALLAR: Þór/KA velti 59 milljónum króna á síðasta ári

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.