Ólafur Flóki lék á mánudag sinn fyrsta leik á tímabilinu fyrir Val þegar hann kom inn á gegn Stjörnunni í hálfleik og hjálpaði liðinu að landa sigri. Ólafur Flóki gekk í raðir Vals fyrir tímabilið 2022 frá uppeldisfélaginu Stjörnunni en leikurinn á mánudag var einungis annar deildarleikur hans fyrir félagið og sá fyrsti síðan 2022.
Varnarmaðurinn hefur farið á lán til Leiknis og Grindavíkur og spilað fótbolta í Bandaríkjunum undanfarin ár. Hann var á árið 2023 í æfingahóp U19 og ári áður fór hann á reynslu til Torino. Í dag sýnir Ólafur Flóki á sér hina hliðina.
Varnarmaðurinn hefur farið á lán til Leiknis og Grindavíkur og spilað fótbolta í Bandaríkjunum undanfarin ár. Hann var á árið 2023 í æfingahóp U19 og ári áður fór hann á reynslu til Torino. Í dag sýnir Ólafur Flóki á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Ólafur Flóki Stephensen
Gælunafn: Maður er kallaður Flóki heima en allskonar stöff komið upp úti eins og Flókz, Flowkey eða DJ.
Aldur: 21 árs.
Hjúskaparstaða: í sambandi.
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það var æfingaleikur í febrúar gegn KA árið 2022, gat ekkert í þeim leik og endaði á því að vera tekinn út í hálfleik.
Uppáhalds drykkur: coke zero.
Uppáhalds matsölustaður: Bjarni Mark tók mig í lunch á Brasa fyrir stuttu siðan, sjúkt stöff.
Uppáhalds tölvuleikur: Rocket league er uppi þessa daganna.
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Ég á ennþá einhvern hlut í safemoon rafmyntinni sem gerði allt vitlaust á sínum tíma, skil ekki ennþá afhverju maður cashaði það ekki út.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Suits og Peaky blinders, hef tekið þá oftar en einu sinni.
Uppáhalds tónlistarmaður: John Summit, nýja platan er algerlega málið.
Uppáhalds hlaðvarp: Dr football og Svona var sumarið.
Uppáhalds samfélagsmiðill: tiktok, límdur við það hálfan daginn.
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: fotbolti.net
Fyndnasti Íslendingurinn: Hjalti Sig og Arnór Ingi saman, gæti ekki einu sinni útskýrt fyrir lesendum hvað á sér stað þar.
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: ok flott, Við amma ætlum að bjóða þér með okkur á tónleika Synfóníuhljómsveitarinnar á Requiem eftir Verdi klukkan 17.00 Á Sunnudaginn. Er búinn að kaupa miðana!! frá king afa.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Ætla vera vel boring og skila auðu.
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Batta bolta Eggert Aron punktur.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Hef átt svo marga frábæra í gegnum tíðina, erfitt að velja einn.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Ætli ég sé ekki 13 maðurinn til að shoutouta Tómas Orra hérna á þessari spurningu.
En hann og Guðjón Pétur á æfingum í Grindavík var free comedy show og peak entertainment fyrir okkur hina, hættu ekki að rífast.
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Cristiano Ronaldo.
Sætasti sigurinn: Úrslitaleikurinn á Gothia Cup 2019, alvöru superteam þar og super staff!
Mestu vonbrigðin: yngri landsliðin, eiga ekki leik.
Uppáhalds lið í enska: Chelsea.
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Krissa Konn brósa, hann er í öðruvísi gír þessa dagana.
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Þorvaldur Kristjáns í Val.
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Stöle í nýja mango jakkanum sínum, fyfaen han er kjekk.
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: mhhmmm
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Cristiano Ronaldo
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: overtime golden goal veisluna yfir til íslands, ekkert jafntefli lengur.
Uppáhalds staður á Íslandi: Garðabær
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Spilaði einu sinni gegn San Marinó u-19 landsliðinu með ítölsku félagsliði, fáránlega furðulegt allt saman en leikurinn fór 15-0 og ég er ekki viss um að þeir hafi komist yfir miðju einu sinni, gleymi þessum leik og fótboltagæðum seint.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Banani fyrir alla leiki alltaf.
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Mikið að vinna með college football og basketball úti í the US, annars golf og úrslitakeppnin heima i körfunni.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike vapors
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Var og er ennþá lélegastur i spænsku.
Vandræðalegasta augnablik: Spilaði leik í fyrra með Clemson og fattaði ekki að það væri ekki rangstæða í markspyrnu, markspyrnan kemur og ég leyfi boltanum að fara yfir mig, leikmaðurinn í hinu liðinu endar einn í gegn bara en sem betur fer klúðraði hann því og ég að sjálfsögðu lét aðstoðar dómarann heyra það, fannst ég vera svo sniðugur að offside trappa gæjann en kom svo í ljós að þetta var fullkomlega löglegt allt saman og guð minn góður hvað það var óþægilegt móment.
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Rauðvínsklúbburinn eldar kæmi saman, Eiður Baldvin Baldvinsson, Sigurbergur Áki Jörundsson og sérstakur gestur væri Arnar Daniel Aðalsteinsson. Þetta væri dinner.
Bestur/best í klefanum og af hverju: Jónatan Ingi er eitthvað fyndinn.
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Lúkas Magni liðsfélagi í Clemson myndi fitta vel inn í Love island samfélagið.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Er með bráðaofnæmi fyrir hundum.
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Óli kalli, that´s it that´s the message.
Hverju laugstu síðast: Í gær laug ég því að ég kæmist ekki í endajaxlatöku í næstu viku útaf einhverju leik sem ég bjó til.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun og hlaup by a mile.
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Ancelotti hvort það sé flókið að taka Neymar með á HM í sumar.
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Vil sjá sem flesta stuðningsmenn á næsta leik, Fulla ferð!



