30.10.26 - 12:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nik rekinn frá Kristianstad


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nik Chamberlain hefur verið rekinn frá sænska félaginu Kristianstad. Nik, sem gerði frábæra hluti sem þjálfari Breiðabliks, tók við kvennaliði Kristianstad fyrir ári síðan en mun ekki stýra liðinu í síðustu þremur leikjunum.
Sagt er frá því í sænskum miðlum að Nik sé látinn fara út af óánægju í leikmannahópnum með störf þjálfarans.
Sagt er frá því í sænskum miðlum að Nik sé látinn fara út af óánægju í leikmannahópnum með störf þjálfarans.
Nik, sem er fertugur í dag, átti eitt ár eftir af samningi við Kristianstad og liðið er í 5. sæti deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir. Tvö stig eru upp í 4. sæti deildarinnar.
Alexandra Jóhannsdóttir, Guðný Árnadóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir eru leikmenn félagsins.
Alexandra Jóhannsdóttir, Guðný Árnadóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir eru leikmenn félagsins.
