Fotbolti.net
30.10.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

Kristófer farinn frá Fylki (Staðfest)

Kristófer farinn frá Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Kristófer Skúli Sigurgeirsson hefur ákveðið að kveðja Fylki eftir tvö ár sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, auk annarra verkefna á sviði afreksþjálfunar.
Kristófer myndaði öflugt teymi í sumar ásamt Heimi Guðjónssyni og byrjuðu Árbæingar árið á því að verða Lengjubikarsmeistarar. Þar áður var hann aðstoðarþjálfari Árna Freys Guðnasonar og Arnars Grétarssonar hjá félaginu.

Þeir komust svo í undanúrslit Mjólkurbikarsins áður en þeir höfnuðu í 3. sæti Lengjudeildarinnar, en mistókst að fara upp í Bestu deildina eftir tap í úrslitaleik umspilsins.

„Ég vil nýta tækifærið og þakka leikmönnum, stjórn, ráðum, starfsfólki og stuðningsfólki Fylkis kærlega fyrir þann tíma sem ég hef átt hjá félaginu. Tíminn hjá Fylki hefur verið einstaklega ánægjulegur og lærdómsríkur og ég er afar þakklátur fyrir allar þær góðu stundir sem ég hef upplifað á þessum tíma," segir Kristófer.

„Ég óska félaginu, leikmönnum og öllum þeim sem starfa innan þess alls hins besta í framtíðinni."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.