Fotbolti.net
01.05.26 - 21:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
LiveyÍtalska deildin

Ítalía: Pisa og Verona fallin eftir sigur Lecce

Mehdi Leris skoraði mark Pisa en það dugði skammt

Mehdi Leris skoraði mark Pisa en það dugði skammt

Canon

Mynd: EPA

Pisa 1 - 2 Lecce
0-1 Lameck Banda ('52 )
1-1 Mehdi Leris ('56 )
1-2 Walid Cheddira ('65 )
Pisa fékk Lecce í heimsókn í ítölsku deildinni í dag. Pisa þurfti á sigri að halda til að forðast fall. Lecce gat styrkt stöðu sína í fallbaráttunni með sigri.

Það var markalaust í hálfleik en Lameck Banda kom Lecce yfir með föstu skoti úr teignum strax í upphafi seinni hálfleiks. Mehdi Leris jafnaði metin stuttu síðar með viðstöðulausu skoti eftir að varnarmönnum Lecce tókst ekki að koma boltanum úr teignum.

Walid Cheddira tryggði Lecce stigin þrjú eftir skyndisókn. Þórir Jóhann Helgason sat allan tímann á bekknum hjá Lecce.

Lecce er í 17. sæti með 32 stig, fjórum stigum á undan Cremonese þegar þrjár umferðir eru eftir en Cremonese á leik til góða. Pisa er á botninum með 18 stig. Verona er einnig fallið en liðið er í 19. sæti með 19 stig.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.