Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fös 01. maí 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía um helgina - Tryggja titilinn með sigri
Mynd: EPA
Mynd: EPA
35. umferð ítalska deildartímabilsins hefst í kvöld þegar botnlið Pisa tekur á móti Lecce.

Góðar líkur eru á því að tvö botnlið deildarinnar, Pisa og Verona, falli niður um deild um helgina.

Það eru áhugaverðir leikir á dagskrá á morgun þar sem Mikael Egill Ellertsson og félagar í Genoa heimsækja Atalanta og spilar Como við Napoli í stórleik helgarinnar. Heimamenn þurfa á sigri að halda í baráttunni um meistaradeildarsæti á meðan ríkjandi meistarar Napoli eru aðeins einni umferð frá því að missa Ítalíumeistaratitilinn til Inter.

Bologna, Milan og Juventus mæta til leiks á sunnudaginn áður en verðandi Ítalíumeistarar Inter eiga heimaleik gegn Parma. Þeir geta tryggt sér titilinn með sigri.

Á sunnudaginn mæta lærlingar Maurizio Sarri, sem eru komnir í úrslitaleik ítalska bikarsins, til leiks gegn fallbaráttuliði Cremonese áður en Roma og Fiorentina eigast við í áhugaverðum slag.

Albert Guðmundsson og félagar í Fiorentina eru svo gott sem búnir að bjarga sér frá falli eftir mikið vonbrigðatímabil, en Roma er í harðri baráttu um meistaradeildarsæti.

Föstudagur
18:45 Pisa - Lecce

Laugardagur
13:00 Udinese - Torino
16:00 Como - Napoli
18:45 Atalanta - Genoa

Sunnudagur
10:30 Bologna - Cagliari
13:00 Sassuolo - Milan
16:00 Juventus - Verona
18:45 Inter - Parma

Mánudagur
16:30 Cremonese - Lazio
18:45 Roma - Fiorentina
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 34 25 4 5 80 31 +49 79
2 Napoli 34 21 6 7 52 33 +19 69
3 Milan 34 19 10 5 48 27 +21 67
4 Juventus 34 18 10 6 57 29 +28 64
5 Como 34 17 10 7 59 28 +31 61
6 Roma 34 19 4 11 48 29 +19 61
7 Atalanta 34 14 12 8 47 32 +15 54
8 Lazio 34 12 12 10 37 33 +4 48
9 Bologna 34 14 6 14 42 41 +1 48
10 Sassuolo 34 13 7 14 41 44 -3 46
11 Udinese 34 12 8 14 41 46 -5 44
12 Parma 34 10 12 12 25 40 -15 42
13 Torino 34 11 8 15 39 56 -17 41
14 Genoa 34 10 9 15 40 48 -8 39
15 Fiorentina 34 8 13 13 38 45 -7 37
16 Cagliari 34 9 9 16 36 49 -13 36
17 Lecce 34 7 8 19 22 46 -24 29
18 Cremonese 34 6 10 18 26 51 -25 28
19 Verona 34 3 10 21 23 56 -33 19
20 Pisa 34 2 12 20 24 61 -37 18
Slapp
banner
banner
banner