„Þetta var mjög erfiður leikur. Ekki mjög flottur fótbolti, engin góð barátta frá okkur né HK. Það var eitt lið var með færri mistök.'' segir Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis, eftir 2-1 tap gegn HK í 2. umferð Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: HK 2 - 1 Ægir
„Okkar plan var að sitja aftar og nýta okkur hraðupphlaupin, það var okkar fyrsta hugmynd. Svo þessi tvö mörk sem við fáum okkur voru mjög ódýr, bæði frá föst leikatriði. Við höfðum ekkert að tapa í seinni hálfleik og settum allt í sóknina. Við skoruðum mark og hefðum geta skorað annað mark í seinustu mínútum leiksins,''
Ægir virtust hafa komist löglega í gegn í loka mínútum leiksins, en línuvörðurinn dæmdi leikmann Ægis rangstæðan.
„Ég ætla ekki að tjá mig um dómarana, ég hef það sem prinsipp og ég ætla að halda mér við því. Dómarar eru manneskjur alveg eins og við, þeir gera mistök,''
Nenad var spurður út í markmið Ægis fyrir tímabilið.
„Markmiðin eru alltaf há. Þessir leikur sýnir það að HK er eitt af besta liðið í deildinni. Svo ef við náum að spila jöfnum leik gegn þeim, þá getum við spilað gegn hvaða liði sem er,''
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.























