„Ég er bara himinlifandi að ná í þrjú stig. Það var markmiðið og það tókst, ég er bara mjög ánægður," sagði Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar eftir 3-1 sigur gegn ÍR í kvöld.
ÍR fékk rautt spjald frekar snemma í fyrri hálfleik og Þróttarar voru töluvert betra liðið eftir það. Sigurvin segist samt aldrei hafa verið alveg rólegur.
„ÍR er bara þannig lið eins og hefur sést síðustu ár og bara í síðustu umferð að það er við öllu að búast. Þannig ég skal bara viðurkenna það að ég var aldrei í rónni. Þeirra upplegg er þannig, sérstaklega þegar þeir eru einum færri þá spila þeir enn meira á sínum styrkleikum. Sem er náttúrulega að lúðra þessu hátt upp og löng innköst og horn, og þeir eru bara drullu góðir í því. Þeir skora náttúrulega beint úr aukaspyrnu til dæmis, mögnuð aukaspyrna. Þá veistu að ef þetta gerist einu sinni getur þetta gerst þrisvar. Þannig ég var pínu svekktur með að ná ekki að klára leikinn með fjórða markinu, hvort sem það var í fyrri eða seinni. Ég get alveg viðurkennt það að seinni hálfleikurinn var ekkert sérlega góður hjá okkur, við vorum einum fleiri og töpum honum. Ég fagna samt, við unnum leikinn og fengum þessi þrjú stig sem við ætluðum okkur að ná í," sagði Sigurvin.
Adam Árni Róbertsson kom til félagsins í vetur frá Grindavík en hefur ekki verið með í fyrstu tveimur leikjum deildarinnar vegna meiðsla.
„Það er bara óljóst, ég átti von á honum klárum í þessum leik en það dróst aðeins. Fyrst að það gekk ekki, veit ég ekki almennilega hvað gerist en ég reikna með og vona innilega að hann verði klár í næsta leik," sagði Sigurvin.























