Markvörðurinn Carl Rushworth hefur gert frábæra hluti á láni hjá Coventry City í ensku Championship deildinni og vill félagið festa kaup á honum.
Rushworth er 24 ára gamall og hefur vakið mikla athygli á sér í vetur. Hann er partur af sterku liði Coventry sem er búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í ár og vinna sér þar með þátttökurétt í deild þeirra bestu - ensku úrvalsdeildinni - í fyrsta sinn eftir 25 ára fjarveru.
Rushworth leikur hjá Coventry á lánssamningi frá Brighton og er enginn kaupmöguleiki innifalinn. Coventry þarf því að semja við Brighton um kaupverð.
Markvörðurinn er aðeins með eitt ár eftir af samningi sínum við Brighton auk möguleika á eins árs framlengingu.
Rushworth er talinn hafa áhuga fyrir því að skipta til Coventry en það eru fleiri úrvalsdeildarfélög sem hafa sýnt honum áhuga síðustu vikur.
Talið er að Brighton vilji um 15 milljónir punda til að selja Rushworth í sumar.
14.03.2026 12:30
Lampard: Getur farið eins langt og hann vill



