Fotbolti.net
01.08.20 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Conte um stórleikinn í kvöld: Munum spila sóknarbolta

Conte um stórleikinn í kvöld: Munum spila sóknarbolta
Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Conte átti 51 árs afmæli í gær og ræddi um viðureign Inter gegn Atalanta í lokaumferð Serie A tímabilsins sem fer fram í kvöld.
Liðin eru að berjast um annað sæti deildarinnar eftir að Juventus tryggði sér Ítalíumeistaratitilinn.

Inter er í öðru sæti sem stendur, einu stigi fyrir ofan Atalanta og Lazio. Lazio heimsækir Napoli á sama tíma.

„Ég vona að þetta verði frábær leikur. Við munum spila sóknarbolta án þess að vera að reikna of mikið út. Þetta verður erfiður leikur gegn sterku liði sem hefur fest sig í sessi meðal fjögurra bestu liða deildarinnar," sagði Conte á Inter TV.

„Atalanta er með bestu sókn deildarinnar en við erum með næstbestu sóknina, auk þess að vera með bestu vörnina. Við viljum enda tímabilið á frábærum leik."

Atalanta er með bestu markatöluna í deildinni; 98 mörk skoruð og 46 fengin á sig. Inter er með næstbestu markatöluna, 79 skoruð og 36 fengin á sig. Markatalan hjá toppliði Juventus er 75-40.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter6+1016
2Lazio6+716
3Roma6+1114
4Cagliari6+313
5Milan6+612
6Juventus6+411
7Como6+311
8Napoli6+410
9Frosinone6+210
10Atalanta609
11Sassuolo608
12Torino6-27
13Lecce6-66
14Bologna6-25
15Udinese6-44
16Monza6-64
17Genoa6-64
18Parma6-64
19Fiorentina6-74
20Venezia6-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.