Al Rayyan 0 - 0 Al Arabi
Aron Einar Gunnarsson lék í 90 mínútur er Al Arabi gerði markalaust jafntefli við Al Rayyan í katarska boltanum.
Lærisveinar Heimis Hallgrímssonar fengu besta færi leiksins á 30. mínútu þegar Hamdi Harbaoui klúðraði vítaspyrnu.
Þetta var annar leikur Al Arabi eftir Covid pásu og er liðið um miðja deild, með 25 stig eftir 19 umferðir.
Al Rayyan hefði getað tekið yfir toppsæti deildarinnar með sigri. Liðið er þess í stað í öðru sæti, einu stigi eftir Al Duhail sem á leik til góða.
Athugasemdir