Fotbolti.net
16.09.26 - 20:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þeir geta verið hvað svekktastir með val dagsins

Vangaveltur og skoðun fréttamanns

Alfons var í hópnum gegn Japan en þar á undan var hann í hópnum síðast árið 2024.

Alfons var í hópnum gegn Japan en þar á undan var hann í hópnum síðast árið 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Í dag var valinn A-landsliðshópur fyrir fjóra leiki í Þjóðadeildinni og einnig var valinn hópur fyrir þrjá leiki U21 landsliðsins í undankeppni EM.

Fótbolti.net setti saman mögulegan landsliðshóp í gær og þar voru sex nöfn sem komust ekki í landsliðshópinn hjá Arnari Gunnlaugssyni. Rúnar Alex Rúnarsson var valinn fram yfir Anton Ara Einarsson, Hjörtur Hermannsson var ekki valinn vegna meiðsla, Daníel Tristan Guðjohnsen er í U21 landsliðinu og þeir Tómas Bent Magnússon, Alfons Sampsted og Willum Þór Willumsson hlutu ekki náð fyrir augum landsliðsþjálfarans.

Undirritaður setti saman lista yfir sjö leikmenn sem geta verið hvað svekktastir yfir valinu á A-landsliðinu í dag og einnig sjö manna lista yfir leikmenn sem fengu ekki kallið í U21 landsliðið en gerðu sterkt tilkall.
Landsliðshópurinn - Ísak Snær og Rúnar Alex koma inn
TENGT EFNI

Landsliðshópurinn - Ísak Snær og Rúnar Alex koma inn

A-landsliðið
Tómas Bent Magnússon - Hearts
Í stóru hlutverki hjá toppliði í Skotlandi og mun spila í Sambandsdeildinni í vetur. Gert tilkall fyrr á þessu ári en samkeppnin á miðsvæðinu er erfið.

Alfons Sampsted - GA Eagles
Hægri bakvörðurinn er í stóru hlutverki í hollensku úrvalsdeildinni og úrvalið af varnarmönnum er ekki í neinum toppi. Hefur eflaust talið sig eiga fínan möguleika á sæti í hópnum.

Stefán Ingi Sigurðarson - GA Eagles
Komið að þremur mörkum í sex leikjum í hollensku úrvalsdeildinni. Erfitt að segja að hann eigi að vera í hópnum frekar en einhver annar, kannski óheppni hversu margir öflugur kostir eru sóknarlega.

Júlíus Magnússon - Elfsborg
Lykilmaður í fjórða besta liði Svíþjóðar, en eins og með Tómas er hann sennilega að berjast um sæti við Andra Fannar, Stefán Teit, Ísak Bergmann, Gylfa og Hákon Haralds.

Þórir Jóhann Helgason - Venezia
Spilað í tveimur af þremur síðustu leikjum hjá liði í ítölsku úrvalsdeildinni. Oft væri það nóg til að fá kallið, en heilt yfir hefur hann ekki spilað nóg síðustu misseri.

Willum Þór Willumsson - NEC
Kannski ekki að spila alveg nægilega mikið til að banka virkilega fast á landsliðssætið en er hluti af góðu liði í Hollandi.

Viktor Bjarki Daðason - FCK
Einn af okkar mest spennandi leikmönnum, er kominn í gang og alveg hægt að setja spurningarmerki af hverju framherji sem er að spila og skora fyrir FCK í dönsku úrvalsdeildinni 18 ára gamall er ekki í A-landsliðinu.

U21
Einar Freyr Halldórsson - Þór
Lykilmaður í liði í Bestu deildinni og var fyrirliði U19 í síðasta verkefni. Er á sínu fyrsta og líklegast síðasta tímabili í Bestu deildinni. Hægt að horfa á mínútur leikmanna í U21 hópnum og spyrja sig hvers vegna aðrir eru valdir. Kjartan Már Kjartansson er í hópnum, hann er í Brann sem er auðvitað mun stærra félag en hefur mjög lítið spilað.

Þorlákur Breki Baxter - Egersund
Sömu rök og hjá Einari. Var algjör lykilmaður hjá Keflavík sem kom öllum á óvart í sumar. Egersund keypti hann svo undir lok gluggans í Noregi.

Markús Páll Ellertsson - ÍA
Hefur raðað inn mörkum í Bestu deildinni. Er auðvitað hjá minna félagi en t.d. Hilmir Rafn sem spilar í Tékklandi, en Markús er heitur um þessar mundir og erlend félög á eftir honum. Getur bæði spilað á væng og frammi.

Jóhannes Kristinn Bjarnason - FH (á láni frá Víkingi)
Lykilmaður í liði FH í Bestu deildinni og hefur verið í hlutverki í þessu U21 liði. Getur leyst fleiri en eina stöðu.

Hinrik Harðarson - Egersund
Svolítið óheppinn að framherjaúrvalið er jafn sterkt og raun ber vitni. Hinrik er að spila vel með Egersund í norsku B-deildinni og gerir alltaf tilkall á sæti í þessum hóp.

Ásgeir Helgi Orrason - Breiðablik
Byrjunarliðsmaður hjá bikarmeisturunum. Hefur ekki átt frábært tímabil en það hafa fæstir hjá Blikum. Hópurinn er ekki sá breiðasti af varnarmönnum og alveg spurning hvort það átti að velja liðsfélaga hans Hlyn Frey frekar í þennan hóp. Hlynur býður reyndar upp á það að geta spilað fleiri stöður. Alveg hægt að setja Baldvin Þór Berndsen hér líka, miðvörður sem gerði tilkall.

Þorri Stefán Þorbjörnsson - Fram
Byrjunarliðsmaður í þriðja besta liði Bestu deildarinnar. Varnarleikur Fram hefur reyndar ekki verið jafn öflugur og undanfarin ár og hinn örvfætti Þorri er í samkeppni við leikmenn eins og Nóel Atla og Davíð Helga í þessum hóp.
Viktor Bjarki gerir tilkall á sæti í A-landsliðinu.

Viktor Bjarki gerir tilkall á sæti í A-landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gríðarlega hörð samkeppni á miðsvæðinu og Júlíus þarf að bíta í það súra epli að vera ekki í hópnum.

Gríðarlega hörð samkeppni á miðsvæðinu og Júlíus þarf að bíta í það súra epli að vera ekki í hópnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markús Páll hefur skorað tólf mörk í Bestu deildinni í sumar.

Markús Páll hefur skorað tólf mörk í Bestu deildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tómas Bent er í stóru hlutverki hjá Hearts.

Tómas Bent er í stóru hlutverki hjá Hearts.

Canon

Mynd: Hearts/Skjáskot

Breki Baxter lék virkilega vel með Keflavík og var keyptur til Noregs.

Breki Baxter lék virkilega vel með Keflavík og var keyptur til Noregs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.