sun 01. ágúst 2021 15:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kane ekki til City ef félagið fær Grealish
Mynd: EPA
Manchester City er talið hafa boðið 100 milljónir punda í Jack Grealish leikman Aston Villa. Harry Kane framherji Tottenham hefur verið orðaður við City en Manchester Evening News greinir frá því að ef Grealish fer til City mun félagið ekki fá Kane.

Þetta kemur mikið á óvart þar sem sögusagnir hafa verið í gangi um að félagið ætli að fá báða leikmennina til sín í sumar.

Það er sagt að Kane hafi ætlað að segja Tottenham að hann vilji fara til City en félagið vilji ekki selja hann.

City þyrfti að borga í kringum 100 milljónir punda fyrir Kane en ef Grealish kemur myndi ekki ganga upp að fá Kane líka.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner