Fotbolti.net
27.09.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Rangt að taka þátt í leikjum gegn Ísrael"

„Rangt að taka þátt í leikjum gegn Ísrael"
Canon

Mynd: EPA

Írski markvörðurinn Gavin Bazunu ákvað að draga sig úr landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Ísrael í Þjóðadeildinni í dag.

Írar funduðu um stöðuna og Bazunu ákvað að taka ekki þátt í leiknum. Hann sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Þar segir hann „að afstaða mín er ekki í andstöðu við ísraelsku þjóðina eða gyðingasamfélagið heldur gegn grimmdarverkunum í svæðinu.“
Einn leikmaður dró sig úr hópnum
TENGT EFNI

Einn leikmaður dró sig úr hópnum

„Að vera fulltrúi þjóðarinnar hefur alla þýðingu fyrir mig. Ég ber mikla virðingu fyrir öllum liðsfélögum, stjóranum, hans starfsliði og öllum Írum," sagði Bazunu.

„Hins vegar hef ég tekið ákvörðun sem ég hef ekki tekið létt. Ég er maður með sterka trú og reyni mitt besta til að vera maður með karakter og meginreglur, þess vegna finnst mér það rangt að taka þátt í komandi leikjum gegn Ísrael.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.