Fotbolti.net
26.09.26 - 20:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mbappe frá næstu vikurnar

Mbappe frá næstu vikurnar
Canon

Mynd: EPA

Kylian Mbappe var hetja Frakka í 1-0 sigri á Tyrklandi í gær. Hann skoraði eina mark leiksins snemma í seinni hálfleik en þurfti að fara af velli skömmu síðar.

Hann varð fyrir því óláni að meiðast á hné.
Hann var sendur aftur til Spánar og fór í frekari skoðun hjá læknateymi Real Madrid í dag.

Þetta leit betur út en á horfðist. Talið er að hann verði frá í að minnsta kosti tvær vikur og verður því líklega klár í slaginn eftir landsleikjahléið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.