26.09.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tuchel: Veit ekki af hverju við gerum svona mörg mistök

Mynd: EPA

Mynd: EPA
England tapaði 3-2 gegn Spáni í fjögurum leik í Þjóðadeildinni í kvöld. Lamine Yamal kom Spáni yfir en mörk frá Anthony Gordon og Harry Kane komu Englandi í 2-1. Kane fékk tækifæri til að skora þriðja markið en klúðraði vítaspyrnu.
Alex Baena og Mikel Oyarzabal skoruðu fyrir Spán í kjölfarið og sigur heimsmeistarana var staðreynd. Thomas Tuchel, þjálfari enska liðsins, tjáði sig eftir leikinn.
„Ég veit ekki af hverju við gerum svona mörg mistök. Auðvitað erum við að spila á móti besta liðinu. Við verðum að nýta færin. Við þurfum smá heppni og hún var ekki með okkur í liði í dag," sagði Tuchel.
„Fram á 65. mínútu fengum við tækifæri til að ná tveggja marka forystu með vítinu. Okkur er refsað á hæsta stiginu, framkvæmd andstæðingsins á síðasta þriðjungnum var á hæsta stigi."