Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 01. ágúst 2021 10:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Van de Beek hefur tekið vel á því á undirbúningstímabilinu
Mynd: Getty Images
Donny Van de Beek leikmaður gekk til liðs við Manchester United frá Ajax síðasta sumar.

Hann tók aðeins þátt í 19 leikjum í deildinni. Liðsfélagar hans eru gríðarlega ánægðir með vinnusemina hans á undirbúningstímabilinu í ár.

Hann virðist mun glaðari og ákveðinn í því að verða sterkari og betri. Hann hefur verið duglegur að lyfta.

Hann var með fyrirliðabandið síðasta korterið í leik gegn Brentford á miðvikudaginn síðastliðinn.

„Ekki teygja á bandinu," skrifaði Maguire fyrirliði United við mynd af Van de Beek á Instagram með fyrirliðabandið. Byssurnar á Van de Beek að stækka.
Athugasemdir
banner
banner
banner