Fotbolti.net
25.09.26 - 08:26
Elvar Geir Magnússon

Leikur í FA-bikarnum spilaður aftur vegna dómaramistaka

Leikur í FA-bikarnum spilaður aftur vegna dómaramistaka
Canon

Mynd: FA

Mulbarton Wanderers sigraði Woodford Town 2-1 í forkeppni FA-bikarsins, elstu og virtustu bikarkeppni heims. Þetta eru lið sem eru í G- og H-deildarstigi enska boltans.

Enska fótboltasambandið hefur nú úrskurðað að í kjölfar dómaramistaka eigi að leika þennan leik aftur.
Woodford skoraði úr vítaspyrnu á 30. mínútu en markið var dæmt af þar sem leikmenn Woodford voru komnir inn í teiginn þegar spyrnan var tekin.

Dómarinn dæmdi óbeina aukaspyrnu til Mulbarton en hefði samkvæmt reglum átt að láta endurtaka spyrnuna.

Liðin mætast aftur 29. september en sigurliðið mun mæta Gloucester City í næstu umferð.

„Félagið er afar vonsvikið yfir þessari ákvörðun, þeim áhrifum sem hún mun hafa á félagið okkar og hvað fordæmi þetta setur varðandi endanleika úrslita í FA-bikarnum í framtíðinni og heiðarleika leiksins," segir í yfirlýsingu Mulbarton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.