25.09.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
U21 í dag - Tel og Mbappé mæta í Laugardalinn

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það eru gríðarlega mikilvægir leikir framundan fyrir U21 landslið Íslands sem er í harðri baráttu við Sviss um 2. sæti C-riðils í undankeppni fyrir EM 2027.
Strákarnir okkar fóru mjög illa af stað í riðlinum en hafa náð sér á strik í undanförnum leikjum og taka á móti ógnarsterku liði Frakklands í dag.
Ísland gerði flotta hluti á útivelli gegn Frakklandi í síðasta landsleikjahléi í mars, en Frakkar skópu nauman sigur. Nú fá strákarnir okkar tækifæri til að endurlauna Frökkunum, en mögulegur úrslitaleikur um 2. sætið gegn Sviss fer svo fram á þriðjudaginn.
Leikirnir verða spilaðir á Pepsi-vellinum í Laugardal, við hliðina á Laugardalsvelli.
Frakkar geta svo gott sem unnið riðilinn með sigri á Íslandi enda eiga þeir 16 stig eftir 6 umferðir. Ísland er með 11 stig eftir 7 umferðir, þremur stigum á eftir Sviss sem heimsækir Frakkland í lokaumferðinni 6. október.
Til gamans má geta að ensku úrvalsdeildarleikmennirnir Jaydee Canvot, Dayann Méthalie, Aladji Bamba, Jean-Mattéo Bahoya og Mathys Tel eru í landsliðshópi Frakka sem heimsækir Laugardalinn.
Þar að auki er Ethan Mbappé, liðsfélagi Hákons Arnars Haraldssonar hjá Lille, í hópnum ásamt Senny Mayulu leikmanni PSG og Lesley Ugochukwu fyrrum leikmanni Chelsea sem leikur á láni hjá Galatasaray í dag.
Landslið karla - U21 - Undankeppni EM C riðill
15:00 Ísland-Frakkland (PEPSI völlurinn)
16:00 Eistland-Færeyjar
17:30 Sviss-Lúxemborg
Aðrir leikir
13:45 Aserbaídsjan-Tékkland
15:30 Búlgaría-Portúgal
15:30 Finnland-Spánn
16:00 Kýpur-Rúmenía
16:00 Slóvakía-Írland
16:30 Holland-Noregur
18:30 England-Kasakstan

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Frakkland | 6 | +17 | 16 |
| 2 | Sviss | 7 | +5 | 14 |
| 3 | Ísland | 7 | +5 | 11 |
| 4 | Færeyjar | 7 | -7 | 9 |
| 5 | Lúxemborg | 6 | -7 | 4 |
| 6 | Eistland | 7 | -13 | 2 |