Fotbolti.net
24.09.26 - 14:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Var sagður á leið í Val en framlengdi í Laugardal - Vegferðin lykillinn

Skoraði ellefu mörk í Lengjudeildinni, eitt í bikarnum og sigurmarkið í úrslitaleik umspilsins.

Skoraði ellefu mörk í Lengjudeildinni, eitt í bikarnum og sigurmarkið í úrslitaleik umspilsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Snær Ingason skrifaði í gær undir nýjan samning við Þrótt en fyrri samningur var að renna út. Aron hefur verið sterklega orðaður í burtu frá Þrótti og aðallega við Val, en hann ákvað að framlengja í Laugardal og taka slaginn þar í Bestu deildinni.

Sóknarmaðurinn átti gott tímabil í Lengjudeildinni og skoraði markið sem tryggði Þrótti sæti í efstu deild. Aron var valinn í lið ársins í deildinni hér á Fótbolta.net.

En hvers vegna ákvað hann að framlengja í Laugardal?
Segir Aron Snæ á leið í Val
TENGT EFNI

Segir Aron Snæ á leið í Val

„Eftir að við komumst upp langaði mig að vera áfram í Þrótti og halda áfram að blómstra í því umhverfi sem er þar."

„Lykilþáttur í ákvörðuninni er að halda áfram á þessari vegferð sem við erum á. Ég vona að við náum að halda í alla okkar leikmenn og náum að stabílíséra okkur í efstu deild."


Lofaði að hjálpa Aroni ef hann vildi fara eftir tímabilið
Varstu nálægt því að fara í Val?

„Ég er mikill liðsmaður og er orðinn mikill Þróttari, enda búinn að vera hérna nokkuð lengi. En ég hugsa auðvitað líka um mig sjálfan og minn feril sem knattspyrnumaður, þannig að ég íhugaði og skoðaði af alvöru hvort það væri gott fyrir mig að skipta í Val eða einhver önnur lið í hærri deild en Þróttur."

Valur bauð í Aron fyrir tímabilið en Þróttur sagði nei. Varstu svekktur með það og var einhvers konar samkomulag um að þú færir í Val ef Þróttur kæmist ekki upp?

„Þegar þetta tilboð Vals kom upp í vor þá auðvitað kitlaði það mig að geta farið strax í efstu deild og spilað með sögufrægum klúbbi. Tímapunkturinn var samt dálítið óheppilegur, þetta var rétt fyrir fyrsta leik í deildinni hjá okkur og við á góðu róli og spenntir fyrir sumrinu. Ég get alveg viðurkennt að ég var smá svekktur í smá stund þegar Venni (Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar) bannaði mér að fara, en ég gat líka alveg skilið hann. Hann lofaði mér líka að hann myndi hjálpa mér að komast í annað lið ef ég óskaði eftir því eftir tímabilið, en það var ekkert sérstakt samkomulag um að það yrði Valur frekar en einhver önnur lið."

Setti kirsuberið á toppinn
Hvernig er að hafa náð að hjálpa Þrótti upp í efstu deild?

„Það er náttúrulega geðveikt, það hefur verið markmiðið frá því að ég skipti alfarið í Þrótt frá Fram að koma þessum klúbbi upp í efstu deild þar sem hann á heima."

„Mér leið vel allt tímabilið og fannst ég vera spila vel og njóta mín. Það að við kláruðum þetta svona eins og við gerðum; fyrir mig að fá að setja kirsuberið á toppinn og skora þetta mark fyrir framan þessa Þróttarstúku sem var á Laugardalsvelli var bara eins og í draumi."


Á myndinni þegar tilkynnt var að bæði Aron Snær og Sigurður Egill Lárusson hefðu framlengt samninga sína við Þrótt voru þeir Aron og Siggi að tefla. Hvor vann skákina?

„Siggi kann örugglega ekki mannganginn þannig ég mátaði hann bara," segir Aron Snær á léttu nótunum.
Fæddur 2001 og lék fyrst með Þrótti 2022.

Fæddur 2001 og lék fyrst með Þrótti 2022.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Var sagður á leið í Val en framlengdi í Laugardal - Vegferðin lykillinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Var sagður á leið í Val en framlengdi í Laugardal - Vegferðin lykillinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Var sagður á leið í Val en framlengdi í Laugardal - Vegferðin lykillinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.